Skip to content
EN

40. (1855). fundur

06.11.2018
Bæjarráð Garðabæjar

40. (1855). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

06.11.2018

Kl. 08:00 - 08:50

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Case number 1805160

01

Víkurgata 20 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ívari Erni Haraldssyni, kt. 090785-2739, leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 20.

Case number 1810243

02

Bakkaflöt 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir að veita Georg Georgiou, kt. 150469-4069 leyfi fyrir viðbyggingu og endurbótum á núverandi einbýlishúsi að Bakkaflöt 12.

Case number 1810244

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Miðsvæði M2c-M2g, Múlar- Suðurlandsbraut.

Lögð fram.

Case number 1806013

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Sundahöfn.

Lögð fram.

Case number 1806135

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dýjagötu 15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dýjagötu 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og fram komu athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun, auglýst í B- deild Stjórnartíðinda og tilkynning um niðurstöðu málsins send þeim aðila sem gerðu athugasemdir.

Case number 1802322

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi byggingarleyfi fyrir reiðskemmu Sóta.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna reiðskemmu Sóta. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust athugasemdir um hæð hússins og litaval. Tilkynna skal þeim sem gerðu athugasemdir um niðurstöðu málsins.

Case number 1806461

07

Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019 (2019-2022).

Lögð fram drög að tillögu um álagningu útsvars, fasteigngjalda og gjalda samkvæmt gjaldskrám.

Lagt fram yfirlit yfir erindi sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lagt fram nýtt minnisblað Samband íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2019 og fjárhagsáætlana til þriggja ára, dags. 2. nóvember 2018.

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar og tillögur sem borist hafa frá íbúum.

Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu um álagningu útsvars árið 2019 til afgreiðslu bæjarstjórnar .

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2019 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2018 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Case number 1810377

08

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði um drög að nýrri reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, dags. 29.10.18.

Lögð fram.

Case number 1810353

10

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði um framlög vegna þjónustu við fatlað fólk, dags. 26.10.18.

Case number 1810376

11

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði um útgjaldajöfnunarframlög 2019, dags. 29.10.18.

Case number 1811017

12

Bréf Garðakórsins varðand styrk á árinu 2019, dags. 24.10.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

Fylgiskjöl

Case number 1811002

13

Umsagnarbeiðni um umsókn um leyfi fyrir gististað að Blikastíg 19.

Bæjarráð telur rétt áður en veitt er umsögn í málinu að umsóknina verði kynnt fyrir húseigendum við Blikastíg. Gefa skal tilgreindum aðilum kost á að tjá sig um umsóknina innan eðlilegs frests.

Case number 1811003

14

Tölvupóstur Billbord varðandi biðskýli og auglýsingaskilti, dags. 29.10.18.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Case number 1811004

15

Bréf UMF Álftaness varðandi stuðning við starfsemi blakdeildar, ódags.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

Fylgiskjöl

Case number 1811001

16

Bréf umhverfis- og auðlindaráðherra um Umhverfisþing 2018, dags.25.10.18.

Case number 1811019

17

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis og Stofnunar Árna Magnússonar um dag íslenskrar tungu, dags. í október 2018.

Bæjarstjóri upplýsti að íslenski fáninn verði dreginn að húni við Ráðhús Garðabæjar eins og venja er 16. nóvember í tilefni dags íslenskrar tungu.

Fylgiskjöl

Case number 1810363

18

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi gjaldskrá, dags. 25.10.18.

Bæjarráð visar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Case number 1809352

19

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála vegna kæru Garðlistar ehf. á niðurstöðu útboðs vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða 2018-21, dags. 26.10.18.

Lagður fram úrskurður kærunefndar útboðsmála þar sem fram kemur í ákvörðunarorði að kröfu Garðlistar ehf. um að útboð Garðabæjar auðkennt „Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Garðabæ 2018-20121“, verði stöðvar er hafnað.

Fylgiskjöl

Case number 1810378

20

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins með sérstöku tilliti til bújarða, 20. mál, dags. 29.10.18.

Case number 1810386

21

Bréf Miðbaugs-minjaverkefnis varðandi umsókn um styrk til alþjóðlegs farandsverkefnis listamanna, dags. 23.10.18.

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.

Fylgiskjöl

Case number 1809275

22

Afgreiðsla fjölskylduráðs varðandi framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2018-2022.

Bæjarráð samþykkir að leggja til bið bæjarstjórn að samþykkja tillögu fjölskylduráðs um framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2018 -2022 til afgreiðslu bæjarstjórnar samkvæmt 9. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Fylgiskjöl

Case number 1810393

23

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, Suðurhöfn, dags. 24.10.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Case number 1810394

24

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, Hamranes, dags. 25.10.18.

Case number 1810395

25

Bréf Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur um uppsögn á starfi, dags. 30.10.18.

Lagt fram bréf Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur, um uppsögn á starfi sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa starfið og leggja fyrir bæjarráð tillögur um ráðningu í starfið að nýju en gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið frá og með 1. febrúar nk.

Bæjarráð færir Margréti Björk þakkir fyrir farsæl störf í þágu Garðabæjar og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.