11. fundur
11. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
18.03.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
Case number 1403194
01
Bréf Eyðibýla á Íslandi varðandi styrk til félagsins, dags. 10.03.14.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
Case number 1403073
02
Tilboð í gatnagerð í Urriðaholti (norðurhluti)
Lögð fram eftirfarandi tilboð í gatnagerð í Urriðaholti$line$$line$Íslenskir aðalverktakar kr. 69.508.255$line$Loftorka Reykjavík kr. 49.590.400$line$Urð og grjót kr. 62.991.300$line$Grafa og grjót kr. 61.476.000$line$Hálsafell kr. 56.488.400$line$Óskatak kr. 59.327.495$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 70.020.120$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Loftorku og felur bæjarverkfræðingi að ganga til samninga við fyrirtækið en gæta skal að biðtíma vegna samningsgerðar samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007.
Case number 1403174
03
Bréf Eddu B. Gunnarsdóttir varðandi launað leyfi, dags. 12.03.14.
Bæjarráð samþykkir að verða við beiðninni og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Case number 1311526
04
Bréf Barnaheilla varðandi þátttöku í tilraunaverkefninu Fri for Mobberi, dags. 15.11.13.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu og greiðslu styrks að fjárhæð kr. 120.000.
Case number 1403153
05
Bréf Reykjavíkur Akademíunnar um styrk vegna ráðstefnu um stöðu leigjenda og ástandið á leigumarkaðnum, dags. 14.03.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Case number 2010120061
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes.
Bæjarstjóri kynnti niðurstöður í drögum að minnisblaði Andra Árnasonar, hrl. þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að breyting á tegund lóða við Hegranes 1-3 úr fjölbýlishúsalóðum í einbýlishúsalóðir hafi ekki falið í sér breytingu í grundvallaratriðum á skipulagstillögunni eins og hún var kynnt. Samkvæmt því er ekki skylt að auglýsa tillöguna að nýju.$line$$line$Í drögum að minnisblaðinu er einnig fjallað um hugsanlega bótaskyldu samkvæmt 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarness til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$
Case number 1211355
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2004-2016 varðandi opið svæði á Arnarneshæð
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 varðandi opið svæði á Arnarnesi til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Case number 1403172
08
Bréf GKG um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2014, dags. 12.03.14.
Bæjarráð samþykkir að veita GKG styrk að fjárhæð kr. 695.056 til greiðslu fasteignagjalda árið 2014.
Case number 1403168
09
Ársreikningur Sorpu 2013
Lagður fram.
Case number 1403139
10
Hönnun gatna í Garðahrauni sunnan Álftanesvegar
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Hnit verkfræðistofu um hönnun gatna í Garðahrauni sunnan Álftanesvegar á grundvelli fyrirliggjandi áætlunar sem er að fjárhæð kr. 9,1 mkr án vsk.
Case number 1312449
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna losun jarðvegs í Urriðaholti
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita Urriðaholt ehf. framkvæmdaleyfi vegna losunar jarðvegs..$line$$line$Fyrir liggur jákvæð umsögn Vegagerðarinnar og umsögn fornleifafræðings.$line$$line$Framkvæmdaleyfisgjald er kr. 68.878
Case number 1304682
12
Afgreiðsla umhverfisnefndar um aðkomuskilti við bæjarmörk.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til úrvinnslu bæjarstjóra.
Case number 1402245
13
Bréf umhverfisnefndar varðandi hreinsunarátak 2014, dags. 11.03.14.
Lagt fram til kynningar.
Case number 1310497
14
Uppbygging á íþróttaaðstöðu GKG
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir GKG um uppbyggingu á félags- íþróttaaðstöðu fyrir starfsemi golfklúbbsins við Vífilsstaði. Jafnframt kynnti bæjarstjóri drög að viljayfirlýsingu um sameiginlega fjármögnun sveitarfélaganna og klúbbsins um uppbygginguna. Fyrir liggur frumkostnaðaráætlun þar sem heildarkostnaður er áætlaður, að meðtöldum framkvæmdum við bílastæði, um 630 mkr. $line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu á viljayfirlýsingu vegna málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.