Skip to content
EN

46. fundur

19.11.2013
Bæjarráð Garðabæjar

46. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

19.11.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Case number 1311412

01

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025, tillaga að endurskoðun, dags. 11.11.13.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Case number 1311375

02

Bréf Garðakórsins varðandi styrk vegna starfsársins 2014, dags. 12.11.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Case number 1311439

03

Bréf UMSK varðandi styrk vegna stefnumótunar UMSK, dags. 07.11.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Case number 1311440

04

Endurnýjun samnings við Hjallastefnuna um skólastarf.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja nýjan samning við Hjallastefnuna um skólastarf á Vífilsstöðum.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla nánari upplýsinga um húsnæðiskostnað Hjallastefnunnar vegna skólastarfs á Vífilsstöðum

Case number 1304356

05

Bréf Jóhannesar V. Bjarnasonar varðandi undanþágu frá þinglýstum kvöðum á Hliðsvegi 1, dags. 14.11.13.

Bæjaráð frestar afgreiðslu málsins.

Case number 1301109

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 08.11. - 15.11.2013.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 08.11. ? 15.11.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Blikanes 22, Holtsvegur 27 og Bensínstöð Olís, .$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu byggingarleyfis vegna niðurifs og endurbóta húsnæðis á Grund (landnr. 123229)

Case number 1311403

07

Bréf Landskerfis bókasafna varðandi samstarfssamning við TEL, dags. 08.11.13.

Í bréfinu er kynnt samþykkt stjórnar Landskerfa bókasafna um að heimila að íslenskar bókfræðifærslur í Gegni (íslensk útgáfuskrá) verði gerðar aðgengilegar í TEL (The European Libary) með þar til gerðum leyfisskilmálum.$line$Í bréfinu kemur jafnframt fram að hafi hluthafar athugasemdir við þessa ákvörðun skulu þær sendar framkvæmdastjóra eigi síðar en 5. desember n.k.

Case number 1307431

08

Tilboð í tryggingar Garðabæjar, dags. 12.11.13.

Lögð fram tilboð frá eftirfarandi aðilum í tryggingar Garðabæjar.$line$$line$Sjóvá-Almennar tryggingar hf. kr. 29.968.359$line$Tryggingamiðstöðin hf. kr. 32.480.277$line$Vátryggingafélag Íslands hf. kr. 29.236.890$line$Vörður tryggingar hf. kr. 50.714.647$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita samninga við lægstbjóðanda Vátryggingafélag Íslands hf.

Case number 1309624

09

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 44. mál, dags. 11.11.13.

Lagt fram.

Case number 1311469

10

Bréf SSH varðandi þjónustusamning við Fjölsmiðjuna og aðgerðir til að styrkja rekstrargrundvöll starfseminnar, dags. 13.11.13.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu skilmálum nýs samnings þjónustusamnings SSH við Fjölsmiðjuna.$line$$line$Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti gerð nýs þjónustusamning.

Case number 1311486

11

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi æskulýðsrannsóknina Ungt fólk 2013 í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla, dags. 14.11.13.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu niðurstöðum rannsóknarinnar Ungt fólk 2013.

Case number 1311012

12

Framkvæmdir og samningar um byggingu bílakjallara.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir kostnaðaráætlun að fjárhæð 62,0 mkr. vegna frágangs við 1. áfanga yfirborðs bílakjallara.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viðaukasamning við Garðabæ-miðbæ ehf., um framkvæmdir við yfirborðsfrágang bílakjallara.

Case number 1307042

13

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.

Lagt fram yfirlit yfir erindi sem bæjarráð hefur vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.$line$$line$Bæjarstjóri lagði fram endurskoðað framkvæmdayfirlit fyrir árin 2014 ? 2017.$line$$line$Bæjarstjóri lagði fram tillögur að breytingum í 19 liðum við frumvarp að fjárhagsáætlun 2014 samtals að fjárhæð kr. 62,0 mkr til hækkunar á útgjöldum. Hækkun útgjalda verður mætt með hækkun á innheimtu útsvari$line$$line$Lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur varðandi sundurliðun fjárhæða samkvæmt efnahagsreikningi í árslok 2012. $line$$line$Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu um álganingu útsvars.$line$$line$?Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars sem lagt verði á tekjur manna á árinu 2014 skuli vera 13,66%, sbr. 1. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.?$line$$line$Tillagan samþykkt.

Case number 1311441

14

Tillaga bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um skipun vinnuhóps í skólamálum

Tillaga lögð fram og rædd.$line$$line$Bæjarráð vísar til afgreiðslu sambærilegrar tillögu sem samþykkt var að vísa til umfjöllunar skólanefndar og til vinnu við endurskoðun skólastefnu sem nú er hafin.