43. (1858). fundur
43. (1858). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.11.2018
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Case number 1806461
01
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022).
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa frá íbúum flokkaðar eftir málefnum.
Bæjarstjóri sagði frá vinnu sviðsstjóra við gerð tillagna um hagræðingu í rekstri en stefnt er að lækkun útgjalda í A-hluta sem nemur 50,0 mkr.
Case number 1811236
02
Bréf Verkiðnar um styrk vegna framhaldsskólakynningar í tengslum við Íslandsmót iðn- og verkgreina, dags. 20.11.18.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um greiðslu kostnaðar við rútuferðir nemenda og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Case number 1811125
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag 2. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila Urriðaholti, sem landeiganda, að láta vinna á sinn kostnað, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Case number 1806403
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar að Miðhrauni 24.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Miðhraun 24 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Case number 1810120
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar að Ljósakri 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6 enda liggur fyrir að breytingin hefur grendaráhrif og fyrir liggur neikvæð afstaða íbúa við Hjálmakur.
Case number 1810393
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar.
Lögð fram.
Case number 1810394
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar - Hamranes.
Lögð fram.
Case number 1811004
08
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi umsókn UMF Álftaness um styrk fyrir starfsemi blakdeildar.
Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um að veita UMF-Álftaness styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 til að efla starfsemi blakdeildar félagsins.
Fylgiskjöl
Case number 1811259
09
Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti Stjörnunnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Case number 1804130
10
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi beiðni um umsögn um tilkynningu um hvort framkvæmdir við fjölnota íþróttahús kunna að vera háðar mati á umhverfisáhrifum, dags. 19.11.18.
Bæjarstjóri kynnti drög að umsögn þar sem niðurstaðan er að framkvæmd við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri hafi ekki í för með sér umtalsverð neikvæð umhverfisáhrif og sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að umsögn og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.