7. (2108). fundur
7. (2108). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.02.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Case number 2402323
01
Þorraholt 11-19 Umsókn leyfi til jarðvegsframkvæmda.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470 leyfi til jarðvegsframkvæmda og landmótunar á lóðunum við Þorraholt 11-19 enda séu allar framkvæmdir á lóð samkvæmt deiliskipulagi, framlögðum uppdráttum og afturkræfar.
Case number 2401089
02
Betri Garðabær 2024.
Samskiptastjóri gerði grein fyrir hugmyndasöfnun í verkefninu Betri Garðabær. Alls bárust 189 hugmyndir. Unnið verður úr hugmyndum og í lok mars verður lögð fram tillaga um 30 hugmyndir sem fara í rafræna kosningu dagana 8. - 20. maí 2024.
Case number 2309674
03
Niðurstöður rannsóknar meðal nemenda grunnskólum Garðabæjar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum Rannsóknar og greiningar í könnum meðal nemenda í 5. - 10. bekk í grunnskólum Garðabæjar.
Case number 2402318
04
Útboð á hirðu úrgangs við heimili í Mosfellsbæ og Garðabæ.
Egill Daði Gíslason, deildarstjóri framkvæmda á umhverfissviði gerði nánari grein fyrir skilmálum vegna fyrirhugaðs útboðs Mosfellsbæjar og Garðabæjar á hirðu alls úrgangs frá heimilum. Gert er ráð fyrir að samningur veri gerður til fimm ára með ákvæði um heimild til framlengingar um eitt ár sem gildir í þrjú ár.
Bæjarráð samþykkir útboðsskilmála og heimilar auglýsingu útboðs.
Case number 1912286
05
Sátt í máli húsfélags Holtsvegar 31-32 gegn Garðabæ o.fl. er varðar byggingarframkvæmdir.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti sátt í máli húsfélagsins við Holtsveg 31-32 gegn Garðabæ o.fl. er varðar byggingarframkvæmdir og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Case number 2402208
06
Tilkynning óbyggðanefndar varðandi kröfur fjármála- og efnahagsráðherra um þjóðlendur á svæði 12 sem nefnist „eyjar og sker“, dags. 12.02.24.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Case number 2402259
07
Tilkynning frá matvælaráðuneytinu ásamt minnisblaði varðandi regluverk um búfjárbeit, dags. 14.02.24.
Lögð fram.
Case number 2402181
08
Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2024, dags. 17.02.24.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 2.487.201 til greiðslu fasteignagjalda árið 2024.
Case number 2402239
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á barnalögum nr. 76/2003 (greiðsla meðlags), 112. mál., dags. 13.02.24.
Lagt fram.
Case number 2402240
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni kvennakvölds í Miðgarði.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi á kvennakvöldi Stjörnunnar sem halda á í Miðgarði 2, mars nk.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Case number 2308538
11
Ársreikningur Garðabæjar 2023 - tillaga um afskriftir.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2023 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 706.753.
Case number 2402209
12
Reglur um innritun í leikskóla
Lögð fram til kynningar drög að reglum um innritun í leikskóla. Drögin hafa verið til umfjöllunar hjá leikskólanefnd og verða tekin fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar sem fyrirhugaður er miðvikudaginn 28. febrúar nk.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir athugasemdum og ábendingum sem fram hafa komið. Einnig var upplýst um stöðu mála varðandi skráningu á dvalartímum barna í nýtt leikskólakerfi Völuna.