7. (2202). fundur
7. (2202). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
24.02.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Case number 2512120
01
Öryggismyndavélar í Garðabæ.
Sviðstjóri þjónustu- og þróunarsviðs kynnti notkun öryggismyndavéla í Garðabæ. Myndavélum hefur verið komið fyrir við undirgöng í bænum, sem var verkefni unnið í samráði við lögregluna. Undanfarið hefur myndavélum fjölgað um þrjár við undirgöng auk þriggja löggæslumyndavéla. Nú stendur yfir samráð við lögreglu um fyrirkomulag og staðsetningu fleiri öryggismyndavélar.
Case number 2510125
02
Skógarprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A210 ehf., kt. 640725-1090, leyfi fyrir einbýlishúsi á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu að Skógarprýði 6.
Case number 2602326
03
Þorraholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að Þorraholti ehf., kt. 681218-0760, leyfi fyrir breytingu á innakstri í bílakjallara í öllum húsum Þorraholts 1A, 1B og 1C.
Case number 2602286
04
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi á árshátíð Garðabæjar í Íþróttamiðstöðinni Mýrinni þann 14. mars 2026.
Lögð fram beiðni UMF. Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á árshátíð Garðabæjar í íþróttahúsinu Mýrinni 14. mars 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Case number 2602306
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Ísó veitinga ehf. um veitingaleyfi í Golfskála GKG.
Lögð fram beiðni Ísó veitinga efh. um leyfi til reksturs, veitingaleyfi í Flokki II - A veitingahús í fl.II í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Case number 2508513
06
Ársreikningur Garðabæjar 2025 - tillaga um afskriftir.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2025 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 461.580.-