18. (2213). fundur
18. (2213). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.05.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Case number 2605190
01
Útboð - Yfirborðsmerkingar í Garðabæ 2026.
Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á yfirborðsmerkingum í Garðabæ 2026.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Case number 2605135
02
Yfirlit Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í Garðabæ, dags. 08.05.26.
Lagt fram minnisblað HMS um stöðu húsnæðisuppbyggingar í Garðabæ. Í samantektinni er ætluð íbúaþörf hvers sveitarfélags borið saman við áætlaða lóðaúthlutun, íbúðauppbyggingu og fólksfjölgun.
Case number 2605141
03
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi endurhönnun Upplýsingaveitu sveitarfélaga og söfnun ársreikninga sveitarfélaga fyrir árið 2025, dags. 12.05.26.
Lagt fram.
Case number 2603139
04
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 og heiðursviðurkenning.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2026. Jafnframt samþykkir bæjarráð tillögu menningar- og safnanefndar um veitingu heiðursviðurkenningar.
Tilnefningarnar verða tilkynntar á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 28. maí 2026, kl. 17:00 í Sveinatungu.