50. fundur
50. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
06.05.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Case number 2604030
02
Sumarnámskeið barna 2026
Sumarnámskeið barna 2026 eru nú birt á vef Garðabæjar og á fristund.is.
32 mismunandi tilboð verða í gangi fyrir 6-9 ára börn frá skólalokum til skólabyrjunar. Opið verður í frístund fyrir 1. og 2. bekk vikuna fyrir skólabyrjun í haust.
Sumarnámskeið barna 2026 eru nú birt á vef Garðabæjar og á fristund.is
32 mismunandi tilboð verða í gangi fyrir 6-9 ára börn frá skólalokum til skólabyrjunar.
Opið verður í frístund fyrir 1. og 2. bekk vikuna fyrir skólabyrjun í haust.
Case number 2604531
03
Sumaraukaopnun sundlauga
Sumarauki í sundlaugum Garðabæjar 2026
Áformað er vegna fjölda fyrirspurna að vera með auka opnun í sundlaugum Garðabæjar í tilrauna skyni á sunnudagskvöldum til kl. 22:00 1. júní til 30. september 2026.
Rædd var tillaga um sumaropnun í sundlaugum Garðabæjar 2026, sem felur í sér lengri opnun sundlauga í Ásgarði og á Álftanesi á sunnudagskvöldum til kl. 22:00 frá 1. júní til 30. september, í tilraunaskyni. Íþrótta- og tómstundaráð telur tillöguna metnaðarfullt og jákvætt skref til að efla þjónustu við bæjarbúa yfir sumartímann og leggur til við bæjarráð að hún verði samþykkt. Að tímabilinu loknu verði tekin saman tölfræði um nýtingu og reynslu af verkefninu og málið metið í framhaldinu.
Undir sama lið var einnig fjallað um fyrirhugaða opnun sundlaugar í Urriðaholti fyrir almenning. Íþrótta- og tómstundaráð fagnar þeim áformum, sem og tilkomu nýs íþróttahúss, og telur hvort tveggja mikilvægt skref í að efla aðgengi bæjarbúa að fjölbreyttri íþrótta-, tómstunda- og heilsueflandi þjónustu.
Case number 2604544
04
Umsókn um styrk vegna persónulegs búnaðar í keppni fatlaðra
Ósk frá Þór Þórhallssyni um styrk vegna kaupa á keppnisáhöldum í skotfimi fatlaðra.
Íþróttafulltrúa er falið að skoða og útfæra mögulegar leiðir til að koma til móts við óskir Þórs Þórhallssonar um stuðning við iðkun afreksíþróttar í skotfimi. Í því samhengi verði meðal annars horft til fyrirkomulags og úthlutunar afreksstyrkja næsta haust.
Case number 2605028
05
Störf ÍTG 2022 til 2026
Yfirlit yfir íþrótta-, tómstunda- og forvarnamál kjörtímabilsins.
Farið er í máli og myndum yfir það helsta sem komið hefur verið í framkvæmd á líðandi kjörtímabili sem nú er að enda.
Formaður íþrótta- og tómstundaráðs fór yfir störf ráðsins á kjörtímabilinu 2022-2026 í máli og myndum og rakti helstu verkefni, áherslur og framfaraskref á tímabilinu.
Á tímabilinu var unnið að fjölmörgum nýframkvæmdum og umbótaverkefnum, auk þess sem verulegt fjármagn var varið til viðhalds, endurnýjunar og uppbyggingar íþrótta- og tómstundamannvirkja. Þar bar hæst áframhaldandi uppbygging og þróun Miðgarðs, uppbygging íþróttahúss og sundlaugar í Urriðaholti, opnun Vinagarðs í Urriðaholti, auk nýrra útivistar- og samgöngustíga sem styrktu tengingu íbúa við íþrótta- og tómstundaaðstöðu.
Jafnframt var ráðist í mikilvægar viðhalds- og endurnýjunarframkvæmdir í eldri mannvirkjum, meðal annars í Mýrinni, Ásgarði og á Álftanesi, þar sem farið var í gólf, ný stúka var sett upp á Álftanesi, nýtt gervigras var lagt, og endurbætur urðu víða á búnaði, lýsingu o.s.frv. Áhersla var þannig lögð bæði á nýja uppbyggingu og ábyrga rækt við eldri innviði.
Ráðið lagði einnig ríka áherslu á að efla stuðning við félög og einstaklinga. Á tímabilinu voru samstarfssamningar og stuðningskerfi þróuð áfram, hvatapeningakerfið styrkt og tekjutenging viðbótarhvatapeninga tekin upp til að bæta aðgengi allra barna og ungmenna að skipulögðu starfi. Þá var fjárhæð ferðastyrkja hækkuð úr 20 þúsund krónum í 50 þúsund krónur, sem var mikilvægt skref í að efla stuðning við íþróttafólk sem sækir landsliðsverkefni og keppni utan landssteinanna.
Félagsmiðstöðvum barna og ungmenna fjölgaði úr þremur í sex á kjörtímabilinu, ungmennahús var opnað, félagsmiðstöð eldri borgara í Lambamýri á Álftanesi var tekin í notkun og undirbúningur hafinn að félagsmiðstöð fyrir fötluð ungmenni í Lambamýri.
Kjörtímabilið 2022-2026 einkenndist þannig af grósku og vexti og nefndarmenn voru sammála um að samstarfið hafi verið gott og skemmtilegt.
Case number 2604399
06
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Kötlu Maríu Geirsdóttur kr. 20.000 vegna Norður Evrópumóts í áhaldafimleikum í Leicester 24 okt. 2025
Ferðastyrkur til Kötlu Maríu Geirsdóttur kr. 20.000 vegna Norður Evrópumóts í áhaldafimleikum í Leicester 24. okt. 2025.
Case number 2604272
07
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ferðastyrkur fyrir Hákon Árna Heiðarsson kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Stavanger 16.04. 2026
Ferðastyrkur fyrir Hákon Árna Heiðarsson kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Stavanger 16.04. 2026.
Case number 2604163
08
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Arons Friðriks Georgssonar kr. 50.000 vegna EM í kraftlyftingum á Möltu 20. mars 2026.
Ferðastyrkur til Arons Friðriks Georgssonar kr. 50.000 vegna EM í kraftlyftingum á Möltu 20. mars 2026.
Case number 2604162
09
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Brynjars Sveins A. Björgvinssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum Sola í Noregi 16. apríl 2026
Ferðastyrkur til Brynjars Sveins A. Björgvinssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum Sola í Noregi 16. apríl 2026
Case number 2604128
10
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Alexanders Úlfs Jónssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Noregi 16. apríl 2026.
Ferðastyrkur til Alexanders Úlfs Jónssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Noregi 16. apríl 2026.
Case number 2604113
11
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Emils Freys Guðjónssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Stavanger í Noregi 16. apríl 2026.
Ferðastyrkur til Emils Freys Guðjónssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Stavanger í Noregi 16. apríl 2026.
Case number 2604018
12
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Skúla Snæs Arnórssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Sola, Noregi 16.til 19. apríl 2026
Ferðastyrkur til Skúla Snæs Arnórssonar kr. 50.000 vegna NM í hópfimleikum í Sola, Noregi 16.til 19. apríl 2026
Case number 2605030
13
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 50.000 til Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna Evrópubikarmóts í bogfimi á Antalya, Tyrklandi 20. til 26. apríl 2026.
Ferðastyrkur kr. 50.000 til Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna Evrópubikarmóts í bogfimi á Antalya, Tyrklandi 20. til 26. apríl 2026.