63. fundur
63. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
11.03.2025
Kl. 20:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Case number 2402168
01
Jazzþorpið í Garðabæ
Rætt um undirbúning Jazzþorpsins sem fer fram 2. - 4. maí 2025.
Menningarfulltrúi kynnti undirbúning áJazzþorpinu í Garðabæ sem fer fram dagana 2. - 4. maí á Garðatorgi. Fjöldi tónlistarmanna koma fram á tónleikum en einnig fara fram erindi um jazztónlist. Samstarf við Góða hirðinn heldur áfram enda mikil ánægja meðal gesta með samstarfið sem felst í sölu á húsgögnum og gripum á meðan á hátíðinni stendur en andvirðið rennur til góðgerðamála.
Case number 2402169
02
Barnamenningarhátíð í Garðabæ
Menningarfulltrúi kynnir dagskrá Barnamenningarhátíðar.
Dagskrá Barnamenningarhátíðar verður að venju fjölbreytt en hátíðin fer fram dagana 7. - 12. apríl. Nemendur í 1. bekk taka þátt í Klappklappstappstapp smiðju sem er þátttökusmiðja með tónlistarmönnunum Ingibjörgu Fríðu og Sigurði Inga, smiðjan fer fram á göngugötunni Garðatorgi. Nemdur í 3. bekk taka þátt í þátttökuverkinu Manndýr í Hönnunarsafni Íslands en Aude Busson sviðslistakona tekur á móti hópum.Nemendur í 5. bekk hitta Gunnar Helgason rithöfund á Bókasafni Garðabæjar þar sem þau læra að búa til söguþráð. Fornleifafræðingur mun svo taka á móti 7. bekkingum í Minjagarðinum á Hofsstöðum.
Auk þess verða sýningar á verkum 4. bekkinga í Hönnunarsafni Íslands og leikskólabarna á Bókasafni Garðabæjar.
Sýningin í Hönnunarsafninu hverfist um fatahönnun en 4. bekkingar hafa í mars unnið að sýningunni ásamt Stefáni Svan fatahönnuði og Ninnu Þórarinsdóttur hönnuði.
Barnamenningarhátíð lýkur laugardaginn 12. apríl með dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Case number 2501370
03
Menningarstefna Garðabæjar
Nefndin fór gagngert í gegnum menningarstefnu frá árinu 2005. Nefndarmeðlimir lögðu fram breytingatillögur sem unnið verður með í kjölfarið. Stefnt er að því að einfalda stefnuna í því skyni að sýn Garðabæjar í menningarmálum sé skýr og hugsuð til langframa.