Skip to content
EN

12. fundur

08.12.2015
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

12. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.12.2015

Kl. 17:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristinn Guðlaugsson - formaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
  • Kristín Harðardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri

Ritari

  • Laufey Ólafsdóttir

Dagskrá

Case number 1506028

01

Skólastarf tónlistarskóla 2015-2016

Skólastjóri fór yfir að framundan eru fjöldi jólatónleika ásamt því að nemendur koma fram í sveitarfélaginu s.s. á Ísafold, skólinn býður nemendum úr 2. og 3. bekk í grunnskólum bæjarins í heimsókn í tónlistarskólann í jólastund 9. desember.

Case number 1508487

02

Starfsmannakönnun Tónlistarskóla Garðabæjar

Verið er að vinna úr starfsmannakönnun skólans sem framkvæmd var í síðasta mánuði. Fyrstu niðurstöður sýna jákvæða útkomu fyrir skólann.

Case number 1511073

03

Landsmót skólahljómsveita 2016

Umræður urðu um landsmót skólahljómsveita sem fyrirhugað er að halda í Garðabæ helgina 29. apríl ? 1. maí 2016. Gera má ráð fyrir að á milli 5-700 tónlistarskólanemendur komi til með að sækja landsmótið. Að auki fylgir þeim einnig góður hópur bæði kennara og foreldra. Gera má ráð fyrir stórum tónleikum sunnudaginn 1. maí. Hópurinn kemur væntanlega til með að gista í skólahúsnæði bæjarins.

Case number 1512096

04

Garðabær 40 ára (1976-2016) Viðburðir og dagskrá.

Umræður urðu um aðkomu nemenda tónlistarskólans að viðburðum og dagskrá í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á komandi ári.