7. fundur
7. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.12.2014
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Case number 1412074
01
Virði Heiðmerkur - rannsókn
Gestur fundarins Kristín Eiríksdóttir doktorsnemi við Háskóla Íslands kynnti rannsókn sem hófst árið 2007 á virði Heiðmerkur.$line$$line$Kristínu þökkuð greinargóð kynning á áhugaverðri rannsókn þar sem markmiðið var að meta virði Heiðmerkur í sex megin verkefnum nemenda við masters og doktors námi sem voru:$line$- virði Heiðmerkur sem uppspretta neysluvatns.$line$- virði skógarins sem uppspretta kolefnisbindingar, viðarnytja og annarra afurða skógarins.$line$- virði Elliða- og Vífilsstaðavatns voru metin með ferðakostnaðaraðferð, markaðsvirði, varnarkostnaði, menntagildi og ábata vegna laxveiða.$line$- virði Heiðmerkur sem fjölnota útivistarsvæði.$line$- virði óháð notkun, eða svokallað tilvistargildi.$line$- mikilvægi líffræðilegs og jarðfræðilegs fjölbreytileika.$line$$line$Rannsóknin var samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá, Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Reykjavíkur, Veiðimálastofnunar,$line$Reykjavíkurborgar, Garðabæjar og Orkuveitu Reykjavíkur sem og Háskólans í Vermont.$line$$line$Rannsóknar niðurstöður eru væntanlegar í útgáfu bókar á næsta ári.
Case number 1405134
02
Ársfundur Umhverfisstofnunar 2014
Fundargerð frá Umhverfisstofnun af ársfundi náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunnar sem haldinn var þann 07.11.14$line$$line$Lögð fram.
Case number 1312302
03
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Niðurstöður sýnatöku á mælingu mengunar við strendur 29.10.14 og yfirborðs lækja og vatna 06.11.14$line$$line$Mengun kemur fram í niðurstöðum mælinga. Forvarnaraðgerðir á vegum fráveitu Garðabæjar undir stjórn verkfræðinga Stendings ehf. eru í fullum gangi.
Case number 1411107
04
Útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler
Erindi Sorpu dags. 05.11.14 vísað frá bæjarráði til umfjöllunar umhverfisnefndar. $line$$line$Umhverfisnefnd leggur til að áfram verði boðið uppá grenndargáma á tveimur stöðum á Álftanesi við Norðurnesveg og Suðurnesveg, auk tveggja grenndargámasvæða í bænum. Að fundin verði lausn á staðsetningu grenndargáma á Garðatorgi eða nágrenni.$line$Góð þátttaka íbúa Garðabæjar við flokkun pappírsúrgangs heima við gerir pappírsgrenndargáma óþarfa, en plastið og glerið þarf að hvetja íbúa til að flokka frá almennu sorpi. Því eru grenndargámar nauðsynlegir.$line$Nefndin hefur áhuga á að auka rými pappírsúrgangs hjá íbúum og gera tilraun með að bæta inn ílátum fyrir plastflokkun í fjölbýlum.
Case number 1401222
05
Samráðshópur um Staðardagskrá 21 - 2014
Fundargerð Samráðshóps Staðardagskrár 21 þann 26.11.14$line$$line$Umhverfisstjóri kynnti það helsta sem kom fram hjá samráðshópnum.
Case number 1412160
06
Endurvinnslukortið
Erindi frá Náttúran.is dags. 10. des. 2014 tekið fyrir að beiðni bæjarstjóra, er varðar ósk um kynningu á nýja Endurvinnslukortinu.$line$$line$Nefndin hyggst bjóða fulltrúa fyrirtækisins að kynna málið fyrir nefndinni.
Case number 1412210
07
Uppgræðsla í Krísuvík 2015
Bréf frá Landgræðslu ríkisins dags. 9. des. 2014 um uppgræðslu í Krísuvík. Meðfylgjandi skýrsla Uppgræðsla í beitarhólfi Hafnfirðinga í Krýsuvík - áfangaskýrsla 2014 - áætlun 2015.$line$$line$Styrkur til uppgræðslu í beitarhólfinu er á fjárhagsáætlun 2015.