36. fundur
36. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
13.10.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Gestur fundarins var Ásta Leifsdóttir landvörður.
Dagskrá
Case number 2108201
01
Utanvegahlaup í landi Garðabæjar
Ásta Leifsdóttir og Linda Björk Jóhannesdóttir fóru yfir hvernig utanvegahlaup gengu í sumar. Ágangur og umstang var mikið sem svæðið í kringum Vífilsstaðavatn þolir illa þar sem fjöldi gesta sækir friðlandið á hverjum degi. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að verndunar og stjórnunaráætlun verði unnin fyrir svæðið.
Case number 1906351
02
Mávar
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar lagt fram ásamt fundargerð heilbrigðiseftirlits og íbúa Sjálands og umræðuskjali um aðferðir til fækkunar sílamávs í Garðaholti og Gálgahrauni frá 2004.
Linda Björk Jóhannesdóttir fór yfir þær aðgerðir sem gerðar hafa verið.
Case number 2109223
03
Ný lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana taka gildi 01.09.2021
Lagt fram.
Case number 2109227
04
Aðgerðaáætlun um aukna vernd votlendis gefin út.
Lagt fram.
Case number 2109394
05
Sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi
Í erindi Sorpu dags.17. september sl. kemur fram að lögð hafi verið fram tillaga að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 sem tekur til starfssvæða fjögurra sorpsamlaga og 32 sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins. Frestur til athugasemda er til 29. október nk. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna fyrir sitt leyti.
Case number 2110101
06
Veiðileyfi í Vífilsstaðarvatni
Umhverfisnefnd samþykkir að endurnýja samstarf við Veiðikortið og telur það góðan kost.
Case number 2011074
07
Skilti á náttúrusvæðum í Garðabæ - ástandskoðun
Unnið er að ástandsskoðun á skiltum í Garðabæ og Umhverfisnefnd leggur til að sett verði upp nýtt skilti við Vífilsstaðavatn norðanvert.
Case number 2106536
08
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025)
Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2022.
Case number 1911396
09
Loftlagsstefna Garðabæjar
Tímalína kynnt um gerð loftlagsstefnu, vinna við hana er hafin og stefnt er á að stefnan verði samþykkt í bæjarstjórn í desember.