4. fundur
4. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
17.04.2026
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Case number 2603149
01
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Beiðni um endurskoðun skerðingar fjárhagsaðstoðar til framfærslu.
Ákvörðun velferðarsviðs er staðfest. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Case number 2307282
02
Beiðni um milliflutning
Tillaga um að velferðarráð nýti heimild í 3. mgr. 11. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði varðandi milliflutning.
Samþykkt er að nýta heimild 3. mgr. 11. gr. reglna Garðabæjar um félagslegt leiguhúsnæði. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Case number 2410319
03
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Staða verkefnis kynnt.
Staða búsetuúrræðis fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti lögð fram til kynningar og umræðu. Teikningar af búsetukjarnanum hafa verið kynntar fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Fyrsta skóflustunga að búsetukjarnanum verður tekin í dag, 17. apríl 2026.
Case number 2101189
04
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð samsráðsfundar velferðarsviða hjá SSH 18. mars 2026 lögð fram til kynningar.
Fundargerð samsráðsfundar velferðarsviða hjá SSH 18. mars 2026 lögð fram til kynningar.
Case number 2601351
05
Hönnun - Útboð -Lambamýri 2. áfangi - Frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni
Stað verkefnis.
Velferðarráð lýsir yfir ánægju með góðan framgang verkefnisins.