Betri Garðabær

Betri Garðabær er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. 

  • Betri Garðabær!
    Nú geta íbúar Garðabæjar, 15 ára og eldri kosið um verkefnin í Betri Garðabæ. Tökum þátt!

Betri Garðabær 2023-2025 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. Verkefnið var sett fyrst á laggirnar árið 2019 og er þetta í þriðja sinn sem verkefnið fer fram. 

Gert var ráð fyrir 100 milljónum króna til verkefnisins 2023-2025. Garðabær er allur eitt svæði í hugmyndasöfnun og kosningu. Við úrvinnslu hugmynda verður leitast við að tryggja að verkefni sem kosið verður um séu landfræðilega dreifð innan sveitarfélagsins. Áhersla er lögð á að verkefnið er þróunarverkefni sem verður þróað áfram með íbúum út frá reynslu, ábendingum og þátttöku.

Verkefnið byggir á hugmyndum um umræðulýðræði, þátttökulýðræði, þátttökufjárhagsáætlunargerð og að virkja almenning til þátttöku í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku, umfram það sem gerist í hefðbundnu fulltrúalýðræði. 

  Þú getur kosið um verkefnin hér

Verkáætlun og tímasetningar

Verkefnið í heild er í fjórum fösum. 

  •  Hugmyndasöfnun
  • Umræða um hugmyndir og úrvinnsla
  • Kosningar
  • Framkvæmd verkefna

Helstu tímasetningar eru eftirfarandi:

Framkvæmd verkefna

Verkefni verða hönnuð, boðin út og framkvæmd frá sumri 2024 og fram á árið 2025 eftir umfangi verkefna. Upplýsingar um stöðu framkvæmda verða aðgengilegar á vef Garðabæjar og verða uppfærðar reglulega. Leitast verður við að hafa samráð við hugmyndasmiði og íbúa um útfærslu verkefna.

Þeim hugmyndum sem ekki ná kosningu verður komið í ákveðinn farveg hjá Garðabæ, t.d. sem ábendingum til fagnefnda eða sem innleggi í skipulagsumræðu.

Aðstoð og upplýsingar

Hægt er að hafa samband við þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 og óska eftir aðstoð.
Öllum stendur til boða að nota almenningstölvur í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi og Álftanesútibúi, og þjónustuveri bæjarskrifstofa Garðabæjar á afgreiðslutíma þessara stofnana.

Spurningar um verkefnið og framkvæmd þess má senda á gardabaer@gardabaer.is eða með pósti stíluðum á Betri Garðabær, Bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabær.