2. maí 2024

Ekki missa af Vorsýningu í Jónshúsi

Á sýningunni er sýndur afrakstur vetrarins í félagsstarfinu og eru sýningarmunir afar fjölbreyttir.

  • Gardabaer-syning-A4-2024-dagskra

Vorsýning félagsstarfs eldri borgara verður opnuð í Jónshúsi 2. maí. 

Meðal þess sem er að sjá á sýningunni eru málverk, bútasaumur og önnur handavinna, bókband, glerlist, trésmíðamunir, útskurður og ullarþæfing.