Applications are being advertised for the preschool development fund.
Note that this news is older than 12 months.

Applications are being invited for allocations from the kindergarten development fund in Garðabær. The development fund is intended to promote innovation and progress in the work of kindergartens in Garðabær.
Fræðslu- og menningarsvið auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi leikskóla í Garðabæ.
Einstaka leikskólakennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu og fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við leikskóla geta sótt um styrk í þróunarsjóð.
Til úthlutunar fyrir árið 2025 eru 9.000.000 kr.
Áhersluþættir Þróunarsjóðs leikskóla veturinn 2025-2026 eru:
- Leikur og nám barna - uppeldislegar skráningar
- Hlutverk og ábyrgð leikskólakennara og starfsfólks í leik barna
- Félags-, samskipta og vináttuþjálfun með áherslu á samkennd
- Lýðræði í leikskólastar- rödd barna
Við hvetjum alla áhugasama að senda inn umsókn þó verkefnið falli ekki undir áherslur þróunarsjóðs þessa árs.
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. apríl og verður þeim svarað fyrir 30. apríl.
Frekari upplýsingar veitir Hanna H Leifsdóttir leikskólafulltrúi.