Skip to content
EN

Renovation of the footbridge at Vífilsstaðavatn is on track.

News
04.09.2024

Note that this news is older than 12 months.

Construction on the renovation of the footbridge in the nature reserve at Vífilsstaðavatn is progressing well.

Uppfært 13. september:
Framkvæmdir við göngubrúna á Vífilsstaðavatni halda áfram í næstu viku og áætluð verklok eru nú á föstudaginn eftir viku, 21. september.
Veðrið hefur aðeins spilað inn í framkvæmdahraða, en brúin ætti þó að vera orðin göngufær á þriðjudag.


Þriðjudaginn 27. ágúst hófust framkvæmdir á göngubrúnni í friðlandi Vífilsstaðavatns . Framkvæmdum miðar vel og ætti vinna við undirstöður, sem er tímafrekasti þáttur verksins, að ljúka í vikunni. Áætluð verklok eru föstudaginn 13. september.

Þess má geta að umrædd brú var smíðuð á staðnum árið 1994 af þáverandi smið bæjarins. Sumarið 2022 kom í ljós fúi í burðarbita og gat á brúargólfi. Ráðist var í viðgerð á þeim skemmdum til að tryggja öryggi gesta friðlandsins. Við nánari skoðun og við viðgerð kom í ljós að tímabært væri að endurnýja þessa 30 ára göngubrú.Göngubrúin við Vífilsstaðavatn endurnýjuð