Residents' meeting on the zoning plan for a residential area at Víðiholt and the zoning plan for a stables area at Álftanes
Note that this news is older than 12 months.

A new time for a briefing on the local planning proposals will be Friday, February 4th at 4:00 PM. The meeting will be held in Sveinatunga on Garðatorg and will also be broadcast live on Garðabær's Facebook page.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur auglýst tillögur að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt og deiliskipulagi hesthúsabyggðar á félagssvæði hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Kynningarfundur - föstudaginn 4. febrúar nk. kl. 16-17:30.
Nýr tími fyrir kynningarfund sem upphaflega átti að halda í haust og síðar í janúar er núna föstudagurinn 4. febrúar nk. kl. 16:00-17:30 Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu.
Fundurinn verður haldinn í fundarrými Garðabæjar í Sveinatungu, Garðatorgi 7, þar sem takmörk eru á fjölda gesta og grímuskylda. Fundinum verður einnig streymt beint á fésbókarsíðu Garðabæjar. Hægt verður að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum útsendinguna á fésbókarsíðunni.
Sjá viðburð hér.
Víðiholt íbúðabyggð – Tillaga að deiliskipulagi - sjá gögn í auglýsingu hér
- Tillagan nær til óbyggðs svæðis á milli hesthúsabyggðar og íbúðarbyggðar við Asparholt.
- Tillagan gerir ráð fyrir íbúðarbyggð á 2-3 hæðum, alls 75 íbúðir í fjölbýli og raðhúsum, aðkomuvegi frá Breiðumýri og opnu svæði til norðvesturs.
Hesthúsahverfi í Breiðumýri – Tillaga að deiliskipulagi - sjá gögn í auglýsingu hér
- Tillagan nær til núverandi hesthúsabyggðar á félagssvæði hestamannafélagsins Sóta.
- Tillagan tekur m.a. á hesthúsabyggð, félagsheimili, reiðskemmu og reiðstígum en markmiðið með deiliskipulaginu er að svæðið falli vel að nærliggjandi íbúðarbyggð.
Athugasemdarfrestur er framlengdur og verður til og með 16. febrúar 2022.
Tillögurnar eru aðgengilegar hér á vef Garðabæjar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ