New information portal on projects covered by the Transport Treaty
Note that this news is older than 12 months.

Verksjá is a new information portal where you can find information about all the major projects that fall under the Transport Agreement. Overview maps, project status, scope, estimated completion date, images and various other information.
Nú gefst áhugasömum kostur á að fylgjast grannt með stöðu framkvæmdir við Borgarlínu, stofnvegi og göngu- og hjólastíga á nýjum vef, verksja.is.
Verksja.is er ný upplýsingagátt þar sem finna má upplýsingar um allar helstu framkvæmdir sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Yfirlitskort, staða framkvæmda, umfang, áætluð verklok, myndefni og ýmiss annar fróðleikur.
Garðabær og fimm sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu , Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, gerðu í haust samkomulag við íslenska ríkið um uppfærðan sáttmála sem felur í sér uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á svæðinu til ársins 2040.
Í uppfærðum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er megin áhersla lögð á styttri ferðatíma, minni tafir og aukið umferðaröryggi. Uppbygging stofnvega og stórbættar almenningssamgöngur, auk fjölgunar hjóla- og göngustíga eru lykilþættir í að tryggja betri samgöngur.
Stofnvegir: Samkvæmt uppfærðum Samgöngusáttmála verður ráðist í 6 ný verkefni við stofnvegi á höfuðborgarsvæðinu auk þeirra þriggja sem þegar er lokið. Öll verkefnin eiga að auka flæði og umferðaröryggi. Framkvæmdir við Arnarnesveg eru í gangi en tenging hans við Breiðholtsbraut og Rjúpnaveg verður mikil samgöngubót.
Borgarlínan: Er almenningssamgangnakerfi (Bus rapid transit) þar sem Borgarlínuvagnar munu að mestu aka í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig munu Borgarlínuvagnar ferðast um umferðarþyngstu svæði höfuðborgarsvæðisins án þess að önnur umferð hafi áhrif á ferðir þeirra. Fossvogsbrú er hluti af 1. lotu Borgarlínu en að auki er gert ráð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendum um brúna. Áætlað er að um 10 þúsund manns muni daglega nýta sér brúna. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist snemma á nýju ári.
Göngu- og hjólastígar: Áætlað að byggja upp alls um 100 km stígakerfi á höfuðborgarsvæðinu, auk undirganga og brúa. Nú þegar er framkvæmdum lokið við um 20 km af göngu- og hjólastígum. Gert er ráð fyrir að um 13% af fjárfestingum Samgöngusáttmálans fari í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng.