17. (1783). fundur
17. (1783). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
09.05.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Case number 1609222
01
Stígprýði 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að leyfa Vilhjálmi Bjarnasyni, kt. 20452-7719 að byggja parhús að Stígprýði 2.
Case number 1609221
02
Stígprýði 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að leyfa Vilhjálmi Bjarnasyni, kt. 20452-7719 að byggja parhús að Stígprýði 4.
Case number 1609281
03
Hraungata 7- Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Hraungötu 7.
Case number 1609331
04
Suðurhraun 12c-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Geislatækni ehf., Laser þjónustunni, kt. 630198-2409 stöðuleyfi fyrir tjaldhúsi að Suðurhrauni 12c.
Case number 1705021
05
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál, dags. 03.05.17.
Case number 1705012
06
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (fjöldi fullrúa í sveitarstjórn) 375. mál, dags. 28.04.17.
Case number 1705013
07
Bréf Íbúðalánasjóðs um fyrri úthlutun stofnframlaga 2017, dags. 28.04.17.
Case number 1704097
08
Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Lagt fram
Bæjarráð samþykkir að fela fjölskyldusviði að skoða nánar viðmiðunarmörk samkvæmt nýjum reglum er tóku gildi í ársbyrjun 2017.
Fylgiskjöl
Case number 1704096
09
Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um húsnæðismál.
Case number 1607216
10
Bréf Lyfjastofnunar varðandi umsókn um opnunartíma lyfjabúðar að Kauptúni 3-7, dags. 27.04.17.
Í bréfinu kemur fram að sótt er um að afgreiðslutími lyfjabúðar í Kauptúni verði mánudaga-föstudaga kl. 11-19, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 10-16.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við lyfsöluleyfi og fyrirhugaðan afgreiðslutíma nýrrar lyfjabúðar í Kauptúni.
Case number 1605246
11
Ársreikningur 19. júní sjóðs um kvennahlaup í Garðabæ fyrir árið 2016.
Case number 1705043
12
Bréf Landkerfis bókasafna um aðalfund 2017, dags. 02.05.17.
Case number 1705045
13
Umsókn Urriðaholts ehf. um leyfi til landmótunar við Vörðuveg, Keldugötu og Víkurgötu, dags. 04.05.17.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum við Vörðuveg, Keldugötu og Víkurgötu og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 ásamt því að benda á að framkvæmdin er í samræmi við skilmála deiliskipulags Kauptúns.
Fylgiskjöl
Case number 1705047
14
Bréf skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar um sumarlaun nemenda, dags. 03.05.17.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2017.
Jón Gunnar Hannesson kt. 060699-2839 píanónemandi.
Arnar Númi Sigurðarson kt. 100995-2049 gítarnemandi.
Fylgiskjöl
Case number 1702192
15
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um arðgreiðslu 2017, dags. 19.04.17.
Lagt fram bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem fram kemur að arðgreiðsla til Garðabæjar á árinu 2017, að frádregnum fjármagnstekjuskatti, nemur kr. 14.784.992.
Fylgiskjöl
Case number 1705048
16
Tillaga bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um að ráðstafa arði frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar ungmennaráðs íþrótta- og tómstundaráðs, skólanefndar, og mannréttinda- og forvarnanefnda og felur viðkomandi nefndum að koma með sameiginlegar tillögu um fjárveitingu til verkefna t.d. á sviði heilsueflandi samfélags.
Fylgiskjöl
Case number 1703301
17
Umsókn Ragnhildar Gunnlaugsdóttur, aðstoðarleikskólastjóra á Ökrum um launað námsleyfi.
Í umsókninni er sótt um launað námsleyfi í fjóra mánuði tímabilið september 2017 til janúar 2018 til ljúka M.Ed. námi.
Bæjarráð vísar umsókninni til nánari athugunar bæjarstjóra.
Case number 1703300
18
Umsókn Jónu Rósu Stefánsdóttur deildarstjóra á leikskólanum Sunnuhvoli um launað námsleyfi.
Í umsókninni er sótt um launað námsleyfi í tvær annir vegna náms í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst á tímabílinu september 2017 til maí 2018.
Bæjarráð vísar umsókninni til nánari athugunar bæjarstjóra.
Case number 1703262
19
Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði
Bæjarráð samþykkir að veita leyfi til framkvæmda við þrjá gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði. Samþykkt hefur verið tilboð í jarðvinnuframkvæmdir og er verksamningur tilbúinn til undirritunar. Opnun tilboða í yfirborðsefni var frestað og samþykkir bæjarráð að fela bæjarverkfræðingi að tilkynna bjóðendum að tilboð verði opnuð mánudaginn 15 maí nk.
Bæjarráð samþykkir að við framkvæmdina verði horfið frá því að breikka og stækka núverandi völl við Stekkjarflöt og þar verði einungis um að ræða endurnýjun á gervigrasi vallarins. Í breytingunni felst að ekki kemur til færslu á ljósamöstrum girðingu eða göngustíg sem liggur utan girðingar meðfram baklóðum húsa við Stekkjarflöt.
Case number 1605502
20
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum frá Arion banka og Íslandsbanka í umsýslukostnað vegna lántöku samkvæmt skuldabréfaútboði.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Arion banka og felur bæjarstjóra að leita samninga við bankann um verkefnið.