Breiðamýri
– Grásteinsmýri – Deiliskipulagsbreyting
2.5.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér
með tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar á Álftanesi í samræmi við
1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43.
sömu laga.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér
með tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðamýrar á Álftanesi í samræmi við
1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43.
sömu laga.
Tillagan nær til fjölbýlishúsa við
Grásteinsmýri og gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Hámarksfjöldi íbúða við
Grásteinsmýri eykst um 18, úr 84 í 102.
Markmið breytingartillögunnar er að
stuðla að meiri fjölbreytni á stærðum íbúða í Breiðamýri og auka framboð á
minni íbúðum.
Þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og
með 13. júní 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www. skipulagsgatt.is (Mál: 514/2024).