Skip to content
EN

A variety of summer jobs available

News
19.02.2026

Garðabær is advertising a variety of summer jobs for the summer of 2026. The application deadline for summer jobs at Garðabær is March 10th.

Garðabær auglýsir fjölbreytt sumarstörf fyrir sumarið 2026. Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ er til og með 10. mars, upplýsingar um störfin má nálgast á ráðningarvef Garðabæjar.

Ýmis spennandi störf eru í boði fyrir 17 ára, t.d. í umhverfishópum og við vinnu í kringum sumarnámskeið íþrótta- og tómstundarfélaga. Vinnutími er 6 tímar á dag í 6 vikur fyrir 17 ára (fædd árið 2009).

Sömuleiðis stendur 18 ára og eldri einstaklingum til boða að sækja um fjölbreytt sumarstörf, t.d. almenn garðyrkjustörf, flokkstjórastörf, vinnu í kringum sumarnámskeið íþrótta- og tómstundarfélaga, vinnu á Hönnunarsafni Íslands að ógleymdum skapandi sumarstörfum.

Fjölbreytt sumarstörf í boði

Vinnuskólinn fyrir 14-16 ára

Vinnuskólinn verður á sínum stað í sumar og búið er að opna fyrir umsóknir. Vinnuskóli Garðabæjar býður unglingum í 8., 9. og 10. bekk upp á fræðandi og uppbyggilega sumarvinnu í öruggu starfsumhverfi. Flest verkefni snúa að garðyrkju og umhirðu í bænum en eldri unglingar eiga möguleika á aðstoðarstarfi í leikskóla eða á sumarnámskeiðum