Skip to content
EN

3. (1864.). fundur

22.01.2019
Bæjarráð Garðabæjar

3. (1864.). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

22.01.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Case number 1806461

01

Fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) - viðauki nr. 1.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 1 vegna kaupa á jörðinni Kirkjubrú á Álftanesi

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2019, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Með kaupsamningi dags. 11. janúar 2019 kaupir Garðabær jörðina Kirkjubrú og land sem henni fylgir. Kaupverð er 125 m.kr. Greiða skal 45 m.kr. á árinu 2019, 40 m.kr. árið 2020 og 40 m.kr. árið 2021.

Kaupsamningurinn var samþykktur á fundi bæjarstjórnar 17. janúar 2019.

Kaup á landi kr. 125.000.000 (eignfært)

Fjármögnun:

Greiðsla 2019 kr. 45.000.000 Hækkun á lántöku ársins um kr. 45.000.000

Greiðslur 2020 og 2021 kr. 80.000.000 Fært á efnahag - lántaka

Samtals kr. 125.000.000

Fylgiskjöl

Case number 1801047

02

Dýjagata 14 (áður 16) - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Björgu Jónsdóttur, kt. 081054-5179 leyfi til að stækka áður samþykkt einbýlishús á lóðinni að Dýjagötu 14.

Case number 1810070

03

Þrastanes 11 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ragnari Þórði Jónassyni, kt. 290571-4999 leyfi til að breyta innra skipulagi einbýlishússins að Þrastanesi 11.

Case number 1811054

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir smáhýsi við Nýjabæ.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn ábúenda að Nýjabæ um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna smáhýsa við Nýjabæ ásamt því að hafna staðsetningu smáhýsa á jörðinni utan deiliskipulagsvæðisins.

Case number 1711067

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Brekkuási 7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vikið sé frá skilmálum deiliskipulags vegna afgreiðslu umsóknar byggingarleyfis fyrir einbylishúsið að Brekkuási 7 enda liggi fyrir samþykki nágranna.

Case number 1803184

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags vegna svæðis í Rjúpnahlíð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að farið verði fram á við svæðisskipulagsnefnd að hafin verði vinna við gerð tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar legu vaxtarmarka í Rjúpnahlíð með það að markmiði að fyrirhugað athafnasvæði um 20 ha falli innan vaxtarmarka. Samhliða breytingu á svæðisskipulagi verður unnið að gerð rammahluta aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands og Hnoðraholts.

Case number 1812022

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu á deiliskipulagsgerð fyrir friðland Garðahrauns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna deiliskipulagstillögu fyrir friðland Garðahrauns. Lýsingin skal send til kynningar í umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.

Fylgiskjöl

Case number 1710244

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu á deiliskipulagsgerð fyrir friðland Gálgahrauns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna deiliskipulagstillögu fyrir friðland Gálgahrauns. Lýsingin skal send til kynningar í umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.

Fylgiskjöl

Case number 1901193

09

Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi aðstöðu eldri borgara, dags. 11.01.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og öldungaráðs.

Fylgiskjöl

Case number 1901251

10

Bréf Reykjavíkurborgar um samstarf um starfsemi neyðarathvarfa Reykjavíkur fyrir heimilislausa, dags. 15.01.19.

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Reykjavíkurborg um starfsemi neyðarathvarfa og samþykkir að bæjarstjóri undirriti samning um greiðslu gistináttagjalds.

Fylgiskjöl

Case number 1901097

11

Auglýsing um skrár (lista) yfir þau störf sem ekki hafa verkfallsheimild.

Bæjarráð samþykkir lista yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

Fylgiskjöl

Case number 1804081

12

Útilífsmiðstöð í Heiðmörk - kynning á teikningum.

Lagðar fram til kynningar teikningar í vinnslu að útilífsmiðstöð skáta í Heiðmörk.

Fylgiskjöl

Case number 1901281

13

Reglur um styrki til starfsmanna í skólum.

Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur um styrki til starfsmanna í skólum.

Fylgiskjöl

Case number 1901279

14

Reglur um launað námsleyfi.

Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur um launað námsleyfi.

Fylgiskjöl

Case number 1901237

15

Tillaga Garðabæjarlistans um að Garðabær taki í notkun umhverfisvænni bifreiðar.

Tillagan rædd.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni á þessu stigi til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl

Case number 1901244

16

Bréf Kvennaráðgjafarinnar um styrk á árinu 2019, dags. 11.01.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.

Fylgiskjöl

Case number 1901274

17

Bréf Hrafnistu varðandi samstarf um rekstur dagdvalar á Ísafold, dags. 17.01.19.

Bæjarráð tekur jákvætt í að eiga samstarf við Hrafnistu um rekstur dagdvalar með það að markmiði að auka hagkvæmni og samnýtingu við starfsemi hjúkrunarheimilis á Ísafold. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í fjölskylduráði og öldungaráði.

Fylgiskjöl