Beint í efni

Dag­skrá Jazzþorps­ins

Fréttir
14.04.2026

Jazzþorpið 2026 fer fram dagana 30. apríl - 3. maí. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir. Hér getur þú nálgast glæsilega dagskrána.

Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið í Garðabæ yfir í 4 daga eða dagana 30. apríl – 3. maí. Við hvetjum Garðbæinga og þeirra gesti til að taka helgina frá og njóta þess sem Jazzþorpið hefur upp á að bjóða.

Heildardagskrána má sjá hér fyrir neðan.

Góði hirðirinn er í samstarfi við Jazzþorpið í Garðabæ. Í ár rennur afrakstur sölu til Alzheimer-samtakanna. Þá leggja Ikea, Húsgagnahöllin og Tekk þorpinu lið.

Te & Kaffi, Kristinn Soð, Vínstúkan Tíu Sopar og Mói Ölgerðarfélag sjá þorpinu fyrir veitingum. Auk þess krydda Lucky Records jazzplötubúð og matarlistamarkaðurinn Me & Mu tilveruna í þorpinu.

Aðgangur í Jazzþorpið í Garðabæ er ókeypis og öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir. Nánar um heildardagská má lesa á Facebook-síðu Jazzþorpsins.

Sjáumst á Garðatorgi dagana 30. apríl – 3. maí.