Fréttir og tilkynningar
Fréttir09.10.2026Barnamenningarhátíð í Garðabæ - Fjölbreytt og flott dagskrá
Vikuna 12. - 17. október fer fram Barnamenningarhátíð í Garðabæ. Um þúsund skólabörn munu sækja hátíðina sem lýkur með fjölskylduviðburði þann 17. október.
Fréttir09.10.2026Afmælislundur Garðabæjar – 50 tré fyrir 50 ár
Í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar hafa 50 tré verið gróðursett á opnu svæði við Hofsstaðabraut, til móts við Kirkjulund. Trén mynda afmælislund Garðabæjar sem verður til marks um hálfrar aldar afmæli bæjarins um ókomna tíð.
Fréttir09.10.2026Opið lengur á sunnudögum út október
Ásgarðslaug og Álftaneslaug verða opnar lengur á sunnudögum út október, eða til klukkan 22:00 í stað 18:00.
Fréttir09.10.2026Tvær einstakar heimildarmyndir um Garðabæ til sýnis í tónlistarskólanum
Sögufélag Garðabæjar í samstarfi við Menningu í Garðabæ býður til sannkallaðrar nostalgíustundar í Tónlistarskólanum í Garðabæ, sunnudagskvöldið 11. október.
Fréttir08.10.2026Gott og gagnlegt samtal um skólamál í Garðabæ
Foreldrar og forráðafólk grunnskólabarna í Garðabæ fjölmenntu í Miðgarð þegar opinn fundur um skólamál í bænum var haldinn.
Fréttir08.10.2026Ný þjónustumiðstöð golfvalla GKG
Samstarfsamningur Garðabæjar, Kópavogs og GKG um uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar golfvalla GKG hefur verið undirritaður af bæjarstjórum sveitarfélaganna og GKG.
Fréttir08.10.2026Þjónustuver Garðabæjar lokar kl. 12:30 á föstudaginn
Þjónustuver Garðabæjar lokar kl. 12:30 föstudaginn 9. október, vegna haustferðar starfsmanna bæjarskrifstofa.
- Tilkynningar06.10.2026
Malbikunarframkvæmdir 6. október
Í dag, þriðjudaginn 6. október, mun Loftorka vinna við malbikun á Holtsvegi, milli Lindastrætis og Bæjargötu. Einnig í Ásbúð.
Auglýsingar06.10.2026Dale Carnegie fyrir ungt fólk í Garðabæ
Garðabær heldur áfram samstarfi við Dale Carnegie um þjálfun á ungu fólki. Næsta námskeið verður haldið í Garðaskóla í október og nóvember 2026 og er fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 15 ára (8. til 10. bekk) búsett í Garðabæ.
Fréttir30.09.2026Hefur þú áhuga?
Hefur þú áhuga á menntun og námsárangri barnsins þíns?
Tilkynningar30.09.2026Heitavatnslaust við Vetrarbraut
Vegna viðgerðar á vegum Veitna verður heitavatnslaust við Vetrarbraut fimmtudag 1. október frá 09:00 - 16:00.
Fréttir28.09.2026Hvað er að frétta í Garðabæ? - Íbúafundir í október
Árlegir íbúafundir í Garðabæ verða haldnir í október.
Tilkynningar28.09.2026Tveggja daga lokun stígs við Arnarneslæk
Stígur við Arnarneslæk verður lokaður í tvo daga, mánudaginn 28. september og þriðjudaginn 29. september, vegna lokaframkvæmda við stígagerð á svæðinu. Lokunin hefst klukkan 9 á mánudagsmorgni og stendur til klukkan 18 á þriðjudag.
- Fréttir24.09.2026
SMS-listi vegna jarðvinnu í Arnarlandi
Nágrönnum Arnarlands stendur til boða að skrá sig á þar til gerðan sms-lista og fá sms-skilaboð frá verktaka um fimm mínútum áður en sprengt er vegna jarðvinnu sem stendur nú yfir.
Fréttir24.09.2026Virkniþing eldra fólks í Garðabæ
Þriðjudaginn 29. sept. verður Virkniþing eldra fólks í Garðabæ haldið í Miðgarði.