Gleðileg jólastund á Garðatorgi
Gleðin réði ríkjum á Garðatorgi þegar Kertasníkir og Stekkjastaur komu fyrr til byggða til að tendra ljósin á jólatrénu á Garðatorgi með aðstoð öflugra leikskólabarna.
Jólasveinarnir sungu nokkur vel valin jólalög með elstu börnum úr leikskólum bæjarins og útdeildu mandarínum inni áður en haldið var út að trénu.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður leikskólanefndar Garðabæjar, fékk þann heiður að telja niður með jólasveinunum og leikskólabörnum áður en ljósin voru tendruð.
Jólatréð kemur að þessu sinni úr Hæðahverfi af landi Garðabæjar.
Jólaandinn er svo sannarlega mættur á Garðatorg. Á morgun, laugardaginn 28. nóvember, verður upphafi aðventu fagnað á aðventuhátíð með dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Nánar hérna á Facebook-viðburði fyrir aðventuhátíð Garðabæjar.














