Beint í efni

Laus störf

Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.

Kynntu þér laus störf hjá Garðabæ hér fyrir neðan.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum.

Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi tilkynningu á skjáinn ásamt tölvupósti um að umsókn hafi borist. Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.

  • Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - vaktavinnufólk

    Garðabær auglýsir störf við íþróttamiðstöðina Urriðaholti. Þar eru sundlaug og íþróttasalur sem þjóna skólakennslu, æfinga- og keppnishópum í körfubolta, handbolta, fimleikum og fleiri íþróttum auk almennings sem stundar sundlaugina og hópatíma í heilsurækt. 

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    6. nóvember 2026
    Sækja um starf

Grunnskólar

  • Sjálandsskóli - stuðningsfulltrúar

    Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80-100% starf. 

    Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 280 nemendur og starfsmenn eru rúmlega 60. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla. 

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    11. nóvember 2026
    Sækja um starf
  • Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari í 1. bekk

    Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í 1. bekk. Í skólanum eru um 460 nemendur í 1. – 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    9. nóvember 2026
    Sækja um starf

Leikskólar

  • Bæjarból - leikskólakennari/leikskólasérkennari 50%/(100%)

    Leitað er eftir leikskólakennara. Um er að ræða 100% starf, 50% leikskólasérkennara og 50% sem leikskólakennari

    Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara til að sinna stuðning við barn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra. 

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    13. nóvember 2026
    Sækja um starf
  • Kirkjuból - leiðbeinandi

    Leikskólinn Kirkjuból óskar eftir leiðbeinanda í 100% stöðu á deild. Starfið er laust frá 1. október 2026 eða eftir nánara samkomulagi. 

    Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi.

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    11. nóvember 2026
    Sækja um starf

Hlunnindi fyrir starfsmenn

Garðabær býður starfsfólki upp á ýmis hlunnindi. Aukin hlunnindi eru sérstaklega í boði fyrir starfsfólk leikskóla.

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Aukin hlunnindi fyrir starfsfólk leikskóla

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
  • 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum

Var efnið hjálplegt?