Beint í efni
IS

Þjón­ustu­ver

Þjónustuverið leggur metnað í að geta svarað öllum fyrirspurnum varðandi starfsemi bæjarins og veita framúrskarandi þjónustu.

Þjónustuver

Staðsetning: Ráðhúsið, Garðatorg 7

Sími: 525 8500

Netfang: gardabaer@gardabaer.is

Opnunartími

Mán. til fimmtudaga kl. 8–16

Föstudaga kl. 8–14

Opið í dag frá 08:00 til 16:00

Þjónustuver Garðabæjar

Þjónustuver Garðabæjar er fyrsti snertiflötur við öll svið bæjarins þar sem ávallt er leitast við að leysa úr erindum íbúa og viðskiptavina.

Þjónustuverið sér meðal annars um:

  • alla almenna þjónustu við íbúa
  • upplýsingagjöf um starfsemi bæjarins
  • upplýsingar um stöðu mála

SMS-skilaboðakerfi Garðabæjar

Garðabær sendir þjónustutilkynningar með SMS-skilaboðum til íbúa í ákveðnum götum og hverfum bæjarins þegar við á. Til dæmis tilkynningar um gatnahreinsun eða viðgerðir hjá Vatnsveitu Garðabæjar.

Skráning í skilaboðakerfi Garðabæjar

Stuðst er við símanúmer sem eru skráð á heimilisföng hjá 1819. Ef símanúmerið þitt er ekki skráð hjá 1819 geturðu skráð það í skilaboðakerfið okkar með því að senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is, með nafni, símanúmeri og heimilisfangi.

Þjónustumiðstöð

Þjónustumiðstöð Garðabæjar sér um ýmsa þjónustu og framkvæmdir fyrir bæinn og íbúa, til dæmis sorphirðu, snjómokstur, gatnaframkvæmdir og garðyrkju.

Ábendingavefur Garðabæjar

Ertu með ábendingu til starfsfólks Garðabæjar varðandi umhverfið? Láttu okkur vita! Hvort sem það er eitthvað sem þú telur að þurfi að laga eða annað sem þú vilt benda okkur á varðandi umhverfið.

Vatn og rafmagn

Hér má nálgast upplýsingar um þjónustu er snýr að vatni og rafmagni.