Ábendingavefur
Ertu með ábendingu til starfsfólks Garðabæjar varðandi umhverfið? Láttu okkur vita! Hvort sem það er eitthvað sem þú telur að þurfi að laga eða annað sem þú vilt benda okkur á varðandi umhverfið.
Senda ábendingu

Við hvetjum íbúa til að nota ábendingavefinn til að benda á það sem þarf að laga eða má betur fara í umhverfinu í Garðabæ. Ábendingarnar fara beint til Þjónustumiðstöðvar til úrvinnslu.
- Veldu staðsetningu á því sem þú vilt benda á.
- Veldu viðeigandi yfir- og undirflokk og skrifaðu lýsingu.
- Þú getur bætt við mynd til nánari útskýringar.
- Sláðu inn netfang. Þú ræður hvort þú gefir upp nafn.
- Netfangið er notað til að senda þér upplýsingar um stöðu ábendingarinnar og hvenær búið er að vinna úr henni.
Þú getur valið eftirfarandi yfirflokka:
- Garðyrkja og opin svæði
- Götur og stígar
- Hálkuvarnir og snjóhreinsun
- Sorphirða og rusl í umhverfi
- Vatn og fráveita
- Ljósastaurar og lýsing
- Almenn ábending varðandi umhverfi
Ef þú ert með almenna fyrirspurn sendu okkur þá tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is.
Ábending til barnaverndar
Barnavernd er með sérstakt ábendingaform. Sjá meira um tilkynningu til barnaverndar.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.