Beint í efni

Barna­vernd

Markmið barnaverndar er að styðja foreldra til að hugsa vel um börnin sín. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu áttu að láta barnavernd vita.

Mikilvægt er að koma strax á framfæri áhyggjum af velferð og öryggi barna, hvort sem það er vegna hegðunar annarra eða barnsins sjálfs.

Að tilkynna til barnaverndar

Tilkynning til barnaverndar er beiðni um stuðning og aðstoð fyrir barn og fjölskyldu þess. Þú getur óskað eftir nafnleynd gagnvart þeim sem verið er að tilkynna.

Það er líka hægt að senda tilkynningu til barnaverndarþjónustu Garðabæjar á netfangið barnavernd@gardabaer.is eða hringja í síma 525 8500 á opnunartíma þjónustuvers Garðabæjar. Utan opnunartíma (á kvöldin og um helgar) er hægt að fá samband við bakvakt barnaverndarþjónustu í gegnum Neyðarlínuna í síma 112.

Starfsfólk barnaverndarþjónustu leggur áherslu á að gæta fyllstu nærgætni í samskiptum við börn og foreldra og sýna þeim virðingu og trúnað. Unnið er samkvæmt barnaverndarlögum.

Ertu barn?

Ef þú heldur að þú eða annað barn sért í hættu hringdu í 112.

Þú getur líka talað strax við einhvern og fengið ráð með því að hringja í 1717 (hjálparsíma Rauða krossins) eða talað á netspjallinu á 1717.is. Þar er opið allan sólarhringinn og er ókeypis.

Hvað á að tilkynna til barnaverndar?

Öll börn (undir 18 ára) eiga rétt á öryggi. Samkvæmt lögum áttu að tilkynna til barnaverndar ef þú hefur áhyggjur af: 

  • Vanrækslu gagnvart barni
  • Barn sé beitt ofbeldi
  • Áhættuhegðun barns
  • Heilsa eða líf ófædds barns sé í hættu

Það er mikilvægt að hafa samband ef grunur er um að velferð barnsins sé í hættu. Ef þú telur að barn sé í hættu skaltu hringja strax í 112.

Hvað gerist eftir tilkynningu?

Barnaverndarþjónustan metur upplýsingarnar og tekur ákvörðun um hvort málið verði kannað nánar. Vanalega er afstaða tekin til tilkynningar innan 7 daga. 

Þau sem tilkynna þurfa að gefa upp nafn svo barnavernd geti haft samband ef þörf er á nánari upplýsingum. Þú getur óskað eftir nafnleynd sem gildir gagnvart öllum öðrum en starfsfólki barnaverndar.

Foreldrar eru alltaf látnir vita að tilkynning hafi borist. Vegna trúnaðar við fjölskyldur fá þau sem tilkynna til barnaverndar ekki að fylgjast með stöðu mála.

Stuðningur í boði

Barnavernd býður upp á stuðning fyrir börn og fjölskyldur. Áhersla er alltaf lögð á samvinnu við foreldra og barn.

Dæmi um stuðning:

  • Viðtöl við ráðgjafa barnaverndar 
  •  Sérfræðiþjónusta  
  • Tilsjón, persónulegir ráðgjafar og stuðningsfjölskyldur
  • Úrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu

Velferð barna

Öll börn eiga rétt á að fá þá hjálp sem þau þurfa til að vaxa og dafna á eigin forsendum. Farsældarlögin tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð á réttum tíma. Garðabær er með skýra verkferla ef grunur vaknar um ofbeldi, vanrækslu eða áhættuhegðun.