Persónuvernd
Garðabær og undirstofnanir bæjarins leggja áherslu á að vernda persónupplýsingar einstaklinga, tryggja áreiðanleika þeirra, trúnað og öryggi við vinnslu.
Persónuverndarstefna, fræðsla og reglur
Þann 15. júlí 2018 tóku gildi ný persónuverndarlög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Garðabæjar vegna fyrirspurna eða ábendinga í tengslum við málefni er varða persónuvernd með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@gardabaer.is . Persónuverndarfulltrúi Garðabæjar er Sigríður Logadóttir.
- Hér á vef Garðabæjar má sjá reglur og samþykktir Garðabæjar á þeirri síðu undir stjórnsýslu má sjá reglur um meðferð trúnaðarupplýsinga, þar með talið persónuverndarupplýsinga og reglur Garðabæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.
- Hér á þjónustugátt Garðabæjar er hægt senda beiðni um upplýsingar varðandi fyrirliggjandi persónuupplýsingar.
Gagnlegt efni um persónuvernd hjá Garðabæ
Persónuvernd við umsóknir um störf og ráðningar
Til þess að geta unnið úr umsókn um starf og lagt mat á hæfni umsækjanda til starfsins er Garðabæ nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingar sem fram koma í umsókninni og þær sem Garðabær aflar frá öðrum með samþykki umsækjanda. Upplýsingarnar eru eingöngu nýttar af mannauðs- og kjaradeild Garðabæjar og yfirmanni viðkomandi stofnunar.
Persónuupplýsingar
Vinnsla persónuupplýsinga nemenda við innritun í grunnskóla
Til að skrá barn í grunnskóla í Garðabæ þarf sveitarfélagið að fá ákveðnar persónuupplýsingar um barnið og foreldra/forráðafólk. Þetta er nauðsynlegt til að uppfylla lög um grunnskóla (nr. 91/2008) og þá ábyrgð sem sveitarfélagið hefur að skrá og vista gögn sem tengjast skólagöngu barna.