Beint í efni

Hins­eg­in hitt­ing­ar í Torg­inu alla mið­viku­daga

Fréttir
10.11.2026

Félagsmiðstöðvarnar í Garðabæ ætla í samvinnu að bjóða upp á sameiginlegan hitting fyrir hinsegin ungmenni í 8.–10. bekk. Hittingurinn verður haldinn alla miðvikudaga kl. 19:00–22:00 í húsnæði Torgsins á Garðatorgi, fyrst haldið miðvikudaginn 18. nóvember nk.

Markmiðið með þessu nýja starfi er að skapa öruggt, hlýlegt og fordómalaust umhverfi þar sem öll ungmenni geta verið þau sjálf, myndað ný vinatengsl og upplifað að þau tilheyri samfélaginu.

Mikilvægt er að öll ungmenni hafi vettvang þar sem þau upplifa sig velkomin, virt og samþykkt eins og þau eru. Með sameiginlegu starfi félagsmiðstöðvanna er verið að stuðla að fjölbreytileika og skapa tækifæri fyrir ungmenni til að kynnast jafnöldrum úr öðrum skólum og hverfum Garðabæjar.

Á hittingunum verður lögð áhersla á notalega samveru, spjall, leiki og fjölbreytta afþreyingu þar sem ungmennin sjálf fá tækifæri til að hafa áhrif á dagskrána og móta starfið eftir sínum áhuga og þörfum.

Öruggur vettvangur

Með þessu framtaki vilja félagsmiðstöðvarnar í Garðabæ senda skýr skilaboð um að öll ungmenni eigi rétt á því að tilheyra, vera sýnileg og finna sinn stað í samfélaginu. Það skiptir máli að eiga öruggan vettvang þar sem hægt er að vera maður sjálfur, eignast vini og upplifa jákvæð samskipti.

Hittingurinn er opinn öllum ungmennum í 8.–10. bekk í Garðabæ, óháð kynvitund eða kynhneigð. Öll sem vilja taka þátt í jákvæðu, opnu og fjölbreyttu samfélagi eru hjartanlega velkomin.

Hvar: Torgið á Garðatorgi

Hvenær: Alla miðvikudaga kl. 19:00–22:00 (fyrsti hittingur 18. nóvember)

Fyrir hverja: Öll ungmenni í 8.–10. bekk í Garðabæ

Við hlökkum til að sjá sem flest og skapa saman vettvang þar sem öll fá að blómstra.