Beint í efni

Að­ventu­há­tíð Garða­bæj­ar

Fréttir
12.11.2026

Fögnum upphafi aðventunnar saman á Garðatorgi. Sköpum, njótum, syngjum, dönsum og upplifum.

Fögnum upphafi aðventunnar saman á Garðatorgi. Sköpum, njótum, syngjum, dönsum og upplifum. Hér er viðburðurinn á Facebook.

Dagskráin er sem hér segir:

Markaður á göngugötu
Kl. 11:00-16.00
Spennandi vörur sem gætu verið tilvaldar í jólapakkana.

Kristín Helga og Fíasól á Bókasafni Garðabæjar
Kl. 12.00
Höfundur les úr Fíasól og jólaævintýri á Tene og úr óútkominni bók.

Jólakortasmiðja á Bókasafnin Garðabæjar
Kl. 12:30-14:30
Búum til okkar eigin jólakort með Auði Helgadóttur hönnuði.

Jólasápusmiðja á Hönnunarsafni Íslands
Kl. 13:00 – 15:00
Fjölskyldusmiðja þar sem jólasápur eða ilmandi jólagjafir verða til en smiðjan er leidd af Urð.

Dagskrá á Garðatorgi 7:

Bestu lög barnanna
Kl. 15.00
Árni Beinteinn og Sylvía Erla syngja skemmtileg lög sem krakkarnir kunna og geta sungið með.

Barnakór Vídalínskirkju
Kl. 15:30
Dásamlegar barnaraddir syngja jólalög og hita upp fyrir jólaballið.

Jólaball!
Kl. 15:45
Jólasveinar leiða söng og dans í kringum jólatréð. Tufti og tröllabarn taka einnig þátt.

Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar
Kl. 16:15
Jólasyrpa sem kemur öllum í hátíðarskap leikin af Blásarasveitinni.

Norræna félagið í Garðabæ býður upp á kakó.

Allir viðburðir eru ókeypis!

Gleðilega aðventu, fögnum saman!