Beint í efni

Íþrótta­fólk Garða­bæj­ar 2026

Fréttir
19.11.2026

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leitar til almennings til að fá sem gleggstar upplýsingar um árangur íþróttafólks í Garðabæ vegna viðurkenninga á Íþróttahátíð bæjarins.

Viðurkenningar hljóta aðeins þeir sem keppa með félögum í Garðabæ eða stunda íþróttagreinar utan Garðabæjar sem ekki eru í boði innan bæjarfélagsins á því getustigi.

Óskað er eftir tilnefningum til:

  • Íþróttafólk Garðabæjar: Tilnefningar félaga um einstaklinga sem skarað hafa fram úr í sinni íþrótt og talist geta til fyrirmyndar í framkomu innan keppnisvallar sem utan. Umsögn ½ A4 þarf að fylgja ásamt mynd af viðkomandi íþróttamanni. Tilnefnið fyrir íþróttagreinar á afreksstigi (efsta getustig í fullorðinsflokkum)
  • Lið ársins í hópíþróttum: keppnislið innan Garðabæjar sem skarað hefur fram úr á árinu.
  • Þjálfarar ársins: Tekið er við ábendingum um ötula þjálfara innan Garðabæjar
  • Landsliðsþátttaka: Óskað er eftir upplýsingum um hverjir hafi keppt í fyrsta skipti með
    • A-landsliði eða
    • U-landsliðum
  • Verðlaun á erlendum vettvangi, s.s. HM, EM, NM eða sambærilegum mótum hvort heldur er sem einstaklingar, para- eða í liðakeppni.

Ábendingar þurfa að hafa borist til Kára Jónssonar, íþróttafulltrúa Garðabæjar, í tölvupósti karijo@gardabaer.is í síðasta lagi 3. desember nk.