Beint í efni

Ic­eland Noir í Garða­bæ: Frá­bær kvöld­stund með Lee Child og Tob­i­as Sant­elmann

Fréttir
12.11.2026

Bókmenntaunnendur fjölmenntu og áttu notalega stund í Sveinatungu þegar hátíðin Iceland Noir teygði anga sína í Garðabæinn í fjórða sinn.

Spennusagnahöfundurinn Lee Child og leikarinn Tobias Santelmann, sem leikið hefur í Exit og nú síðast Harry Hole í Netflix-sjónvarpsseríu eftir bók Joe Nesbö, voru sérstakir gestir viðburðarins.

Rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir spjallaði við Lee Child og leikarinn Gísli Örn Garðarsson stýrði spjallinu við Tobias Santelmann.

Viðburðurinn er hluti af off venue-dagskrá bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir sem stendur yfir dagana 11. til 14. nóvember.

„Það var húsfyllir í Sveinatungu og gestir voru himinlifandi með viðburðinn. Margir voru að hitta átrúnaðargoð sitt, rithöfundinn Lee Child, í fyrsta sinn og fengu af sér myndir með honum og eiginhandaáritun,“ segir Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar, um vel heppnaða kvöldstund.

Ljósmyndarinn Ívar Eyþórsson var á staðnum og fangaði stemninguna.