Neyðarkallinn er mættur í Garðabæ
Fréttir
05.11.2026

Elvar Jónsson, gjaldkeri Hjálparsveita skáta Garðabæ, afhenti Almari Guðmundssyni neyðarkall á bæjarskrifstofu Garðabæjar.
Neyðarkall björgunarsveita er árlegt fjáröflunarátak. Allur hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið.
Sala á neyðarkalli fer fram til 8. nóvember og hægt er að nálgast neyðarkall hjá sjálfboðaliðum í öllum stærstu verslunarkjörnum á meðan átakinu stendur.