Orð og sögur

Orð og sögur er samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar, fræðslu- og frístundasviðs, skólabókasafna, grunnskóla og leikskóla bæjarins.
Verkefninu verður ýtt formlega úr vör á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, með skemmtilegri vinnu í leik- og grunnskólum bæjarins. Nemendur í 4. - 8. bekk taka þátt í frábærri verkefnavinnu sem leikarinn Mikael Kaaber kynnir í heimsóknum í skólana, þar verður er unnið með orðaforða, tungumál og skapandi skrif.
Í lok verkefnisins verður ein saga úr hverjum árgangi valin og höfundar hennar heiðraðir við skemmtilega verðlaunaafhendingu í desember.
Elstu börnin í leikskólunum taka einnig þátt og spreyta sig á skapandi sagnagerð.
Orð og sögur - markmið verkefnisins er m.a. að:
· Efla orðaforða
· Auka lestrargleði
· Styrkja frásagnarhæfni og sköpun
· Varðveita tungumálið okkar
· Kynna bókasafnið sem lifandi samfélag og sameign íbúa.
Það verður nóg um að vera á bókasafni Garðabæjar á meðan á verkefninu stendur og við hvetjum ykkur til að kíkja í heimsókn! Fylgstu með á samfélagsmiðlum Garðabæjar og bókasafnsins.