Beint í efni

Ic­eland Noir í Garða­bæ - Lee Child og Tob­i­as Sant­elmann

Fréttir
06.11.2026

Spennusagnahöfundurinn Lee Child og leikarinn Tobias Santelmann sem leikið hefur í Exit og nú síðast Harry Hole í Netflixsjónvarpsseríu eftir bók Joe Nesbö koma fram á Iceland Noir - Off Venue í Garðabæ.

Bókmenntahátíðin sem hressir uppá skammdegið, Iceland Noir, teygir anga í Garðabæinn í fjórða sinn.

Yrsa Sigurðardóttir mun spjalla við Lee Child en Gísli Örn Garðarsson við Tobias Santelmann.

Viðburðurinn er 11. nóvember og hefst klukkan 20 í Sveinatungu, Garðatorgi 7, aðgangur ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Hér má finna viðburðinn á Facebook.