Gerður svarar spurningum bæjarbúa

Gerður er heitið á nýju spjallmenni sem hefur tekið til starfa á vef Garðabæjar. Gerður svarar spurningum bæjarbúa á lipran hátt, fljótt og vel. Með tilkomu spjallmennisins Gerðar geta íbúar og aðrir viðskiptavinir nálgast upplýsingar um þjónustu Garðabæjar á enn auðveldari hátt en áður.
Hvernig á að spjalla við Gerði?
Til að spjalla við Gerði er smellt á talbólu sem birtist í horninu hægra megin niðri þegar farið er inn á gardabaer.is. Þá birtast nokkrir möguleikar að hafa samband við Garðabæ og þar er hægt að smella á „Spjallmenni“ til að hefja spjallið. Þá opnast gluggi þar sem hægt er að setja inn spurningu eða spurningar til Gerðar.

- Hvað má spyrja Gerði um? Allt sem viðkemur þjónustu Garðabæjar.
- Hvað er ekki hægt að spyrja um? Stöðu persónulegra mála hjá bænum. Ekki setja inn persónurekjanleg gögn eins og kennitölu í spjalli við Gerði.
Spjallmennið byggir á gervigreind
Spjallmennið Gerður notast við gagnagreiningar og gervigreindartækni til að geta svarað spurningum og haldið uppi spjalli á sem bestan hátt við íbúa. Garðabær hefur verið í samstarfi við fyrirtækið Avista um spjallmennið Gerði.
Tæknin sem Gerður byggir á er í sífelldri þróun og upplýsingar sem notandi veitir þegar hann á í samskiptum við Gerði eru notaðar við þjálfun spjallmennisins til þess að bæta svörun Gerðar. Það getur þó komið fyrir að einstaka svör séu ekki nógu góð og allar ábendingar um svörun spjallmennisins Gerðar má koma á framfæri til Garðabæjar í tölvupósti á gardabaer@gardabaer.is
Spjallmennið Gerður er vel að sér er varðar þjónustu Garðabæjar en í fornu máli var talað um „að vera vel að sér gerr (eða gerður)“ sem á einstaklega vel við nafn Gerðar.
Bæjarbúar eru hvattir til að prófa spjalla við Gerði hér á vef Garðabæjar.