Ábyrg forgangsröðun í fjárhagsáætlun Garðabæjar

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, fimmtudaginn 5. nóvember.
Áætlunin gerir ráð fyrir 176 milljóna króna hagnaði á A- og B-hluta samanlagt en 266 milljóna króna rekstrarhalli verður á A-hluta. Unnið er að frekari aðhalds- og hagræðingaraðgerðum til að styrkja grunnreksturinn og bæta afkomuna. Fyrirséð er því að áætlunin muni taka töluverðum breytingum milli umræðna áður en hún verður tekin til endanlegrar afgreiðslu 3. desember næstkomandi.
Garðabær hefur á þessu ári glímt við erfiðara rekstrarumhverfi en áætlanir gerðu ráð fyrir. Eins og fram kom í árshlutauppgjöri bæjarins hafa þrálát verðbólga og hár fjármagnskostnaður haft veruleg áhrif á reksturinn. Verðbólga hefur reynst hærri en spár gerðu ráð fyrir og fjármagnskostnaður því farið fram úr áætlunum.
Bærinn hefur jafnframt vaxið mikið á undanförnum árum og samhliða því hafa kröfur til þjónustu og uppbyggingar innviða aukist. Fjölgun íbúa, ekki síst barnafjölskyldna, hefur kallað á aukin útgjöld til skóla, leikskóla og annarrar þjónustu. Ljóst er að rekstrarforsendur sveitarfélaga um allt land hafa breyst hratt og við því þarf að bregðast af ábyrgð. Þá hafa verkefni og skyldur sveitarfélaga aukist án þess að fullnægjandi fjármögnun hafi í öllum tilvikum fylgt.
Aukin áhersla á hagræðingu og forgangsröðun
Undanfarið hefur farið fram greiningarvinna meðal stjórnenda Garðabæjar þar sem rekstur, útgjöld og verkefni bæjarins hafa verið til skoðunar. Sú vinna heldur áfram milli umræðna um fjárhagsáætlunina með það að markmiði að útfæra frekari hagræðingaraðgerðir og styrkja grunnreksturinn. Áhersla verður lögð á að forgangsraða fjármunum í þágu mikilvægustu verkefna bæjarins, nýta fjármagn sem best og standa vörð um áframhaldandi góða þjónustu við íbúa.
„Garðabær hefur áður gripið til aðhaldsaðgerða þegar aðstæður hafa kallað á og þær skilað árangri. Sú reynsla verður nýtt í þeirri vinnu sem nú stendur yfir. Ábyrg fjármálastjórn undanfarinna ára hefur skapað okkur trausta stöðu sem skiptir miklu máli í núverandi árferði. Við ráðum litlu um þróun verðbólgu, vaxta og annarra ytri þátta, en við stýrum því hvernig við forgangsröðum verkefnum og ráðstöfum fjármunum bæjarins. Þar liggur okkar ábyrgð. Við erum þegar komin vel af stað í þeirri vinnu og ætlum með auknu aðhaldi og skýrri forgangsröðun að standa vörð um traustan rekstur og góða þjónustu við Garðbæinga,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
Traust fjárhagsstaða mikilvæg við breyttar aðstæður
Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að framkvæmdir nemi tæpum 4 milljörðum króna á næsta ári en einnig er gert ráð fyrir gatnagerðarframkvæmdum í nýrri hverfum bæjarins. Veltufé frá rekstri er áætlað 2,3 milljarðar króna. Áætlaðar langtímalántökur nema 3,5 milljörðum króna, en nettólántökur nema um 600 milljónum króna. Skuldaviðmið samkvæmt reglugerð er 95,7% og framlegðarhlutfall 12,5%.
Garðabær stendur á traustum fjárhagslegum grunni. Sterk eiginfjárstaða og hófleg skuldsetning gera bænum kleift að mæta sveiflum í efnahagslífinu. Traust fjárhagsstaða Garðabæjar er afrakstur ábyrgrar fjármálastjórnar og aðhalds í rekstri undanfarin ár. Sú staða veitir bænum mikilvægt svigrúm til að mæta breyttum aðstæðum.
Fjárhagsáætlunin verður tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn 3. desember næstkomandi. Fram að þeim tíma verður áfram unnið að útfærslu aðhaldsaðgerða og forgangsröðun verkefna.