Beint í efni

Víð­tæk bil­un hjá Microso­ft hef­ur áhrif á tölvu­póst­sam­skipti

Fréttir
13.11.2026
Ráðhús Garðabæjar

Uppfært: Póstsamskipti eru að komast í lag. Hægt er að hringja í þjónustuver Garðabæjar í s. 525 8500.

Vegna bilunar hjá Microsoft á alþjóðavísu var netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is sem og önnur netföng hjá stofnunum og starfsmönnum Garðabæjar óvirk að hluta til um tíma í gær og í dag. Nú virðist sem tölvupóstsamskipti séu að komast í lag en það getur þó tekið einhvern tíma í viðbót þar til allir póstar berast sem skyldi skv. upplýsingum frá Microsoft.

Hægt er að hringja í þjónustuver Garðabæjar í s. 525 8500 á opnunartíma þess sem og símanúmer annarra stofnana Garðabæjar á opnunartíma þeirra.

Microsoft hefur gefið út að biðtími tölvupósts verði lengdur svo að póstar sem voru sendir síðustu tvo sólarhringa skili sér örugglega.

Fréttastofa RÚV hefur sett upp fréttavakt þar sem finna má upplýsingar um bilunina hjá Microsoft.



Víðtæk bilun hjá Microsoft hefur áhrif á tölvupóstsamskipti - Garðabær