Fréttir og tilkynningar
Auglýsingar13.08.2026Kjörfundur í Garðabæ
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB, er fram á að fara laugardaginn 29. ágúst 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni og Álftanesskóla.
Fréttir13.08.2026Dagskrá afmælishátíðar Garðabæjar 29. ágúst
Afmælishátíð Garðabæjar verður haldin laugardaginn 29. ágúst á Garðatorgi. Það verður líf og fjör á torginu frá klukkan 13:00 en formleg setning hátíðarinnar er klukkan 14:00.
Tilkynningar12.08.2026Framkvæmdir við göngu- og hjólastíga við Ásahverfi
Framkvæmdir við að aðskilja göngu- og hjólastíga við Ásahverfi eru enn í fullum gangi og nú er vinna hafin milli göngubrúar og Lyngáss. Hjáleið er um Stórás.
Fréttir12.08.2026Skólabyrjun haustið 2026
Grunnskólar í Garðabæ verða settir mánudaginn 24. ágúst.
Tilkynningar11.08.2026Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg - 3. áfangi
Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg. Í 3. og síðasta áfanga verksins verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs áfram lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg.
Auglýsingar11.08.2026ÍTG auglýsir eftir umsóknum um afreksstyrki
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum um afreksstyrki fyrir einstaklinga og hópa, samkvæmt afreksstefnu ÍTG grein 3.3..
Tilkynningar10.08.2026Vegaframkvæmdir: Suðurnesvegur lokaður að hluta
Seinnipart mánudags 10. ágúst verður hluta Suðurnesvegar á Álftanesi lokað vegna viðhaldsvinnu og einnig þriðjudaginn 11. ágúst vegna malbikunarvinnu frá kl. 10 og fram eftir degi. Hjáleið verður um Norðurnesveg.
Tilkynningar10.08.2026Vífilsstaðavegur lokaður milli Hafnarfjarðarvegs og Unnargrundar
Mánudaginn 10. ágúst verður hluta Vífilsstaðavegar lokað vegna malbikunarvinnu. Hjáleið um Hafnarfjarðarveg og Lyngás.
Tilkynningar06.08.2026Malbiksframkvæmdir - lokun á Arnarnesvegi
Föstudaginn 7. ágúst er stefnt á að fræsa hringtorg á Arnarnesvegi við Smárahvammsveg ef veður leyfir. Arnarnesvegur verður lokaður milli Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar.
Fréttir06.08.2026Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026
Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu og hann mun sjást vel frá Garðabæ. Sérstakar ráðstafanir verða gerðar á Álftanesi til að tryggja gott umferðarflæði yfir daginn.
Tilkynningar06.08.2026Gálgahraun og stígakerfi Garðabæjar
Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögu að breytingu á 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar sem snýr að stígakerfum Garðabæjar og tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns hefur verið framlengdur til og með 25. ágúst.
Tilkynningar06.08.2026Álftaneslaug lokuð vegna viðhalds 10.-17. ágúst
Álftaneslaug verður lokuð vegna árlegs viðhalds dagana 10.-17. ágúst nk.
Fréttir04.08.2026Sameinumst undir regnboganum
Hinsegin dagar standa yfir dagana 4.-9. ágúst í ár og dagarnir eru hátíð menningar, mannréttinda og margbreytileika.
Tilkynningar04.08.2026Tímabundin lokun á aðrein frá Arnarnesvegi að Hafnarfjarðarvegi
Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg. Í 2. áfanga verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg.
Tilkynningar31.07.2026Syðra bílastæði við Vífilsstaðavatn lokað í ágúst
Syðra bílastæðið við Vífilsstaðavatn verður lokað tímabundið frá 4. ágúst vegna framkvæmda.