Beint í efni

Opið leng­ur á sunnu­dög­um út októ­ber

Fréttir
09.10.2026

Ásgarðslaug og Álftaneslaug verða opnar lengur á sunnudögum út október, eða til klukkan 22:00 í stað 18:00.

Ásgarðslaug og Álftaneslaug voru opnar lengur á sunnudögum í allt sumar og hefur bæjarráð samþykkt að framlengja opnunartíma sundlauganna til kl. 22:00 á sunnudagskvöldum út októbermánuð.

Lengri opnunartími á sunnudögum er liður í að styðja við lýðheilsu bæjarbúa, auka aðgengi að hreyfingu og fjölskylduvænni þjónustu í sumar og styðja við samfélagslega samveru.

Sundlaugar Garðabæjar

Opið lengur á sunnudögum út október - Garðabær