Hvað er að frétta í Garðabæ? - Íbúafundir í október
Fréttir
28.09.2026

Árlegir íbúafundir í Garðabæ verða haldnir í október.
Þrír íbúafundir sem haldnir eru undir yfirskriftinni Hvað er að frétta í Garðabæ? eru á dagskrá í október.
Þar mun Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar ásamt sviðsstjórum fara yfir það helsta sem er í gangi í bænum um þessar mundir og sitja fyrir svörum.
Fundirnir eru skipulagðir út frá hverfum bæjarins en athygli er vakin á því að hverfaskiptingin er aðeins leiðbeinandi og eru fundir opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.
Dagsetningar:
- Fyrsti fundur verður haldinn í Álftanesskóla 14. október, klukkan 19:30.
- Annar fundur fer fram í Urriðaholtsskóla 20. október, klukkan 19.30.
- Þriðji fundur verður haldinn 28. október klukkan 19.30 í Miðgarði, 2. hæð.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Öll velkomin og hlökkum til samtalsins.
