Barnamenningarhátíð í Garðabæ - Fjölbreytt og flott dagskrá

Vikuna 12. - 17. október fer fram Barnamenningarhátíð í Garðabæ. Um þúsund skólabörn munu sækja hátíðina sem lýkur með fjölskylduviðburði þann 17. október.
Nemendur í 1. bekk munu fá áhugaverða dagskrá í Minjagarðinum á Hofsstöðum, nemendur í 3. bekk sækja sögustund í Hönnunarsafninu og nemendur í 5. bekk njóta ritsmiðju í Bókasafni Garðabæjar. Þá munu 7. bekkingar taka þátt í danspartýi á Garðatorgi 7. Sýning á verkum leikskólabarna verður á bókasafninu og sýning á hönnun 4. bekkinga í Hönnunarsafninu.
Laugardaginn 17. október er svo fjölskyldum boðið á dagskrá sem endurspeglar dagskrána sem skólahópar sækja á hátíðinni og þannig geta foreldrar skyggnst inní spennandi verkefni barna sinna.
Dagskráin laugardaginn 17. október er sem hér segir:
11.30-12:45 Bókasafn Garðabæjar - Leikur að myndum og orðum
Smiðja fyrir 5-8 ára: Skapaðu þinn eigin dreka með Iðunni Örnu, bókasafnsdrekahöfund.
Smiðja fyrir 9-12 ára: Ritsmiðja með Arndísi Þórarinsdóttur rithöfundi sem vinnur með orð upp úr orðakrukku bókasafnsins.
12:15 Minjagarðurinn á Hofsstöðum-Landnámskrakkar
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá lífinu á landnámsöld. Hvernig var að vera landnámskrakki í Garðabæ?
13.00 Hönnunarsafn Íslands-Sögustund
Ingibjörg Fríða Helgadóttir úr Þjóðsögukistunni og í Ljósi krakkasögunnar á Rúv, og Halldór Eldjárn tónlistarmaður kynna heim vöruhönnunar með sögum og tónum en sögustundin fer fram á sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili. Skráning nauðsynleg á honnunarsafn.is
14.00 Garðatorg 7-Danspartý
Friðrik Agni og Anna Claessen leiða partýið sem er ferðalag um heiminn með tónlist og dansi.
Sýningin Vöruhönnun krakka á Hönnunarsafni Íslands:
Öllum nemendum í 4. bekk í grunnskólum Garðabæjar var boðið í heimsókn á Hönnunarsafnið til að skella sér í ímyndaða tímavél! Heimsóknin hófst á að spóla til baka aftur í tímann, á sögustund þar sem við fræddumst um vöruhönnun fortíðar á sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili.

Að því loknu stilltum við tímavélina inn í nútíð og framtíð í skapandi smiðju með hönnunarteyminu ÞYKJÓ. Bekkirnir tóku fyrir ólík herbergi á heimilum og völdu sér hluti til að þróa í formi skissu og frumgerðar í þrívídd. Á smiðjunum fæddust fjöldi stórkostlegra hugmynda á sviði vöruhönnunar, allt frá uppskriftabókaflettara í eldhúsið til skeinivélmennis á baðherbergið! Við bjóðum gesti velkomna inn í þessa frjóu og uppfinningaglöðu huga!
Verkefnið er í tengslum við sögustundina Sögur af hlutum með Ingibjörgu Fríðu og Halldóri Eldjárn sem fer fram 17. október.
Á Bókasafni Garðabæjar verður sýningin Árstíðarverur sem unnin var af börnunum á Bæjarbóli og Krakkakoti.
Dagskráin er ókeypis og öll velkomin.