Lausar lóðir í Hnoðraholti suður
Auglýsingar
19.10.2026

Einstök staðsetning og náttúra.
Garðabær auglýsir til sölu á almennum markaði byggingarrétt fyrir 26 einbýlishúsalóðir og alls 23 íbúðir í fjórum raðhúsalengjum í Hnoðraholti suður.
Auk þess er leitað eftir tilboðum frá byggingarsamvinnufélögum í byggingarrétt fyrir samtals 18 íbúðir í fimm raðhúsalengjum.
Íbúðabyggð í Hnoðraholti er einstaklega vel staðsett þar sem íbúar á öllum aldri geta notið þeirra gæða sem hverfið sjálft og aðliggjandi svæði bjóða upp á.