Lausar lóðir
Hér má finna upplýsingar um lausar lóðir í Garðabæ. Einnig má sjá allar lausar lóðir á kortavef Garðabæjar.
Hnoðraholt suður - háholt
Íbúðabyggð í Hnoðraholti er einstaklega vel staðsett þar sem íbúar á öllum aldri geta notið þeirra gæða sem hverfið sjálft og aðliggjandi svæði bjóða upp á.

Garðabær auglýsir til sölu á almennum markaði byggingarrétt fyrir 26 einbýlishúsalóðir og alls 23 íbúðir í fjórum raðhúsalengjum í Hnoðraholti suður.
Auk þess er leitað eftir tilboðum frá byggingarsamvinnufélögum í byggingarrétt fyrir samtals 18 íbúðir í fimm raðhúsalengjum.
Lausar lóðir
Á kortavef Garðabæjar má finna upplýsingar um lóðirnar. Í felliglugga hægra megin er ýtt á +fasteignir og +lausar lóðir og birtast þá þær lóðir sem eru lausar að þessu sinni, hvor lóðartegund um sig hefur sinn einkennislit.
Með því að smella á lóð má sjá upplýsingar um:
- Stærð lóðar
- Byggingarmagn
- Fjölda hæða
- Fjölda íbúða á lóð

Frekari upplýsingar
Deiliskipulag fyrir Hnoðraholt suður - háholt var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 5. febrúar 2026 og
staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 18. júní 2026. Sjá hér á Skipulagsgátt.
Tilboðsgerð
Tilboð í byggingarrétt lóðanna þurfa að berast fyrir kl. 12:00 föstudaginn 30. október 2026, til einnar af þeim fasteignasölum sem tilgreindar eru sem söluaðilar. Jafnframt er bjóðendum heimilt að skila tilboðum fyrir framangreint tímamark á bæjarskrifstofur Garðabæjar, að Garðatorgi 7. Tilboðin skulu gilda til kl. 12:00 föstudaginn 6. nóvember 2026.
Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl. 08:00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.
Fasteignasalan Torg, Garðatorg eignamiðlun, Fasteignamarkaðurinn og fasteignasalan Miklaborg og annast sölu á byggingarrétti lóðanna fyrir Garðabæ og veita upplýsingar vegna tilboðsgerðar.
Reglur og skilmálar
Breeam vottun
Samhliða deiliskipulagsvinnu Hnoðraholts norður var unnið að því að umhverfisvotta deiliskipulagið samkvæmt alþjóðlega vottunarkerfinu Breeam Communities.
Með umhverfisvottun skipulags er tryggt að umhverfisáhrif skipulags sem og samflot þess við nærliggjandi umhverfiseinkenni sé í forgangi.
Götur og lóðir merktar
Búið er að marka í jarðveg hvernig göturnar muni liggja og merkja staðsetningu lóðanna með skiltum. Athugið að það er ekki fært fyrir fólksbíla á svæðinu, hægt er að leggja á Vorbraut eða Vetrarbraut og labba inn göturnar.



