Beint í efni

Fræðslu­fund­ur í for­varn­ar­viku

Fréttir
21.10.2026

Forvarnarvikan í Garðabæ verður haldin 4.–11. nóvember. Boðið verður upp á fræðslufund fyrir forráðafólk barna og unglinga og aðra áhugasama miðvikudaginn 4. nóvember í Sjálandsskóla klukkan 19:30 - 21:00.

Dagskrá fundar:

  • Birkir Guðlaugsson., formaður íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, opnar dagskrá kl. 19:30
  • Jóhann Vikar Bergmann, nemandi í Tónlistarskóla Garðabæjar og í 10. bekk í Garðaskóla, leikur á píanó.
  • Ásgerður Arna Sófusdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Geðheilsumiðstöð barna, flytur erindið Ertu að tengja? Hvernig tengsl umönnunaraðila styðja við líðan, sjálfsmynd og farsæld barna í skólanum.
  • Samfélagslögreglan fer yfir stöðuna í Garðabæ
  • Samtal
  • Fundarslit kl. 21:00.