Hefur þú áhuga?
Fréttir
30.09.2026

Hefur þú áhuga á menntun og námsárangri barnsins þíns?
Garðabær býður foreldrum og forráðafólki grunnskólabarna í bænum á opinn fund um skólamál þann 7. október klukkan 19:30 í Miðgarði, 2. hæð.
Á fundinum verða menntamálin til umfjöllunar.
Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fer yfir niðurstöður PISA 2025-könnunarinnar og fjallar um hvaða lærdóm er hægt að draga af þeim.
Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi heldur áhugavert erindi um nám og uppvaxtarár sem undirbúning fyrir framtíðina og atvinnulífið.
Við rýnum í námsárangur grunnskólabarna í Garðabæ og vörpum fram hinum ýmsu spurningum um skólamál. Hvað gengur vel? Hvað mætti betur fara? Hvaða áskoranir og tækifæri blasa við okkur? Við viljum heyra frá ykkur!
Við hvetjum foreldra grunnskólabarna í Garðabæ til að láta sjá sig á fundinum, hlýða á fyrirlestra og taka þátt í samtali um menntun og framtíð barnanna okkar.