Gott og gagnlegt samtal um skólamál í Garðabæ

Foreldrar og forráðafólk grunnskólabarna í Garðabæ fjölmenntu í Miðgarð þegar opinn fundur um skólamál í bænum var haldinn.
Á fundinum voru menntamál til umfjöllunar. Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, flutti erindi um niðurstöður PISA 2025-könnunarinnar og þann lærdóm sem draga má af þeim fyrir íslenskt skólastarf.

Þá var rýnt í þá tölfræði sem liggur fyrir um námsárangur, framvindu, líðan og mætingu nemenda í Garðabæ. Rætt var um samstarf skóla og heimila og þá þætti sem leika stórt hlutverk þegar kemur að farsælli skólagöngu og velferð barna.
Einnig var stiklað á stóru um það sem skólar Garðabæjar hafa innleitt og þau markmið og stefnur sem hafðar eru að leiðarljósi í starfinu.

Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, hélt þá áhugavert erindi undir yfirskriftinni Nám og uppvaxtarár sem undirbúningur fyrir framtíðina og atvinnulífið.

Í lok fundar fengu fundargestir tækifæri til að varpa fram spurningum og deila sjónarmiðum sínum.
„Það skapaðist gott og gagnlegt samtal um stöðu menntamála, námsárangur og líðan barna í Garðabæ og leiðir til að styðja enn betur við nemendur í bænum. Það var frábært að ná þessu samtali og fá fram ólík sjónarmið en það er alveg ljóst að við erum öll að vinna að sama markmiðinu, að búa börnin okkar vel undir framtíðina. Svo var áhugavert að hlýða á erindi Ástu Fjeldsted í lok fundar. Hún er ekki bara atvinnurekandi heldur er hún líka dóttir kennara og skólastjóra, foreldri þriggja barna og fyrrverandi nemandi sem hefur stundað nám víða um heim. Það var gaman að hlusta á hana tala um menntamál út frá þessum ólíku sjónarhornum,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, um vel heppnaðan fund.
Glærur Garðabæjar frá fundinum eru aðgengilegar hér fyrir neðan, auk glæra frá Önnu Kristínu.